Sá heitasti á Netflix opnar bar

Lucien Laviscount er með mörg járn í eldinum.
Lucien Laviscount er með mörg járn í eldinum. AFP

Breski leik­ar­inn Lucien Laviscount hef­ur slegið í gegn í Net­flix-þátt­un­um Em­ily in Par­is. Leik­ar­inn ger­ir þó meira en að heilla heims­byggðina í sjón­varpsþátt­un­um því ný­verið opnaði hann nýj­an bar í London. 

Nýi bar­inn heit­ir The Wealt­hy Bag­ger og er í Kensal Rise í Norðvest­ur-London. Með Laviscount í liði er veit­ingamaður­inn Zac Lichm­an en þeir ráku einnig bar sam­an sem var lokað í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um. Leik­ar­inn seg­ir í viðtali við For­bes að þeir hafi lært af reynsl­unni og það nýt­ist vel. 

Eng­ar skít­sæmi­leg­ar fransk­ar og vond­ur bresk­ur ham­borg­ari er í boði á staðnum. Lögð er áhersla á mat­ar­gerð frá allri Asíu sem og kokteil­agerð. Ga­reth Drew er yfir­kokk­ur á staðnum en hann hef­ur meðal ann­ars unnið á hinum heims­frægu stöðum Nobu í London og Buddah Bar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert