Jón Jónsson nýtur lífsins á Balí

Jón Jónsson birti þessa skemmtilegu með mynd af fjölskyldu sinni …
Jón Jónsson birti þessa skemmtilegu með mynd af fjölskyldu sinni og apa frá Balí. Skjáskot/Instagram

Tón­list­armaður­inn Jón Jóns­son og Haf­dís Björk Jóns­dótt­ir tann­lækn­ir fóru til Balí á dög­un­um með góðu fólki. Fjöl­skyld­an fagnaði jól­un­um á Íslandi en þau voru hinu meg­in á hnett­in­um þegar árið 2023 gekk í garð. 

Með í æv­in­týra­ferðinni eru að sjálf­sögðu börn þeirra hjóna en Jón og Haf­dís sem hafa verið sam­an í 20 ár eignuðust sitt fjóra barn í vor. Litli dreng­ur­inn er orðinn mik­ill heims­borg­ari strax á fyrsta ári. Jón er dug­leg­ur að sýna frá tíðum ferðalög­um þeirra á In­sta­gram. 

Ferðamenn eru byrjaðir að streyma til Balí eft­ir heims­far­ald­ur­inn. Tón­list­armaður­inn Helgi Björns­son var á Balí yfir hátíðirn­ar og ferðaljós­mynd­ar­inn Ása Stein­ars var þar ásamt fjöl­skyldu sinni í tölu­verðan tíma ný­lega og kom heim rétt eft­ir jól. Hita­stigið er auðvitað ansi nota­legt en meðal­hiti í janú­ar er 26 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert