Þetta borða og drekka flugfreyjur ekki í háloftunum

Samsett mynd

Flug­freyj­ur og þjón­ar eru sér­fræðing­ar þegar kem­ur að því hvað má og hvað má ekki gera um borð í flug­vél. Þau sinna afar mik­il­vægu ör­ygg­is­starfi í háloft­un­um, en sam­hliða því sjá þau um drykkj­ar- og veit­inga­sölu um borð.

Flug­freyj­ur og þjón­ar nefna iðulega þrennt sem boðið er upp á um borð í flest­um flug­vél­um sem þau myndu aldrei borða eða drekka. 

1. Krana­vatn (þar með talið kaffi og te)

„Ég drekk aldrei krana­vatn í flug­vél­um. Kaffi og te er búið til með krana­vatni sem kem­ur úr vatnstönk­um flug­vél­ar­inn­ar,“ sagði Sue Fogwell, fyrr­ver­andi flug­freyja til 22 ára, í sam­tali við ferðavef Tra­vel + Leisure

„Ef þú vilt kaffi, kauptu það á flug­vell­in­um. Ef þú þarft koff­ín um borð skaltu biðja um kók eða pepsí,“ bætti hún við. 

Ljós­mynd/​Pex­els/​Andrew Neel

2. Mat­væli sem mynda loft í mag­an­um

„Í flug­vél get­ur breyt­ing á loftþrýst­ingi farið illa í mag­ann. Þetta á sér­stak­lega við ef þú ferðast nokkr­um sinn­um í viku, en þá get­ur þú farið að finna mik­inn mun.

Af þess­um sök­um forðast ég alltaf að borða mat sem mynd­ar loft í mag­an­um og veld­ur uppþembu, eins og lauk, græn­kál, baun­ir, rautt kjöt, linsu­baun­ir, glút­en og spergilkál,“ seg­ir Josephine Remo, fyrr­ver­andi flug­freyja til sjö ára. 

Þá seg­ir Remo kol­sýrða drykki einnig geta leitt til óþæg­inda, og því gæti verið góð hug­mynd að sleppa þeim. 

Ljós­mynd/​Unsplash/​Tij­ana Drnd­arski

3. Bloo­dy Mary-kokteil­ar

Það hef­ur verið vís­inda­lega sannað að Bloo­dy Mary-kokteill­inn bragðast bet­ur í háloft­un­um. Natríum­inni­hald drykks­ins er hins veg­ar mjög hátt, og því mæl­ir Fogwell með því að fólk sleppi því að fá sér kokteil­inn í háloft­un­um. 

Það að inn­byrða of mikið af salti get­ur valdið uppþembu og ofþorn­un, svo ef þú ákveður að fá þér Bloo­dy Mary-kokteil, vertu þá viss um að drekka nóg af vatni á móti. 

Ljós­mynd/​Pex­els/​Osvaldo Romito
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert