Flugfreyja gefur sex bestu ferðaráðin

Ljósmynd/Colourbox

Góð ferðaráð geta gert ferðalög­in auðveld­ari, ein­fald­ari og ánægju­legri. Því er ekki fjarri lagi að hlusta vel þegar flug­freyj­ur deila ferðaráðum, enda hafa þær mikla reynslu úr háloft­un­um og eru sér­fræðing­ar í því að ferðast.

Ný­verið deildi flug­freyja með 10 ára reynslu sín­um bestu ferðaráðum með les­end­um Insi­der

1. Haltu þér vak­andi fram á kvöld á nýju tíma­belti

„Að kom­ast í gegn­um fyrsta dag­inn án þess að sofna hjálp­ar mér alltaf að aðlag­ast nýju tíma­belti. Það trygg­ir líka besta mögu­lega næt­ur­svefn­inn og minnk­ar flugþreytu,“ út­skýr­ir flug­freyj­an. 

2. Slepptu inn­rituðu tösk­unni

„Ég kýs að ferðast án inn­ritaðrar tösku svo ég geti forðast það að bíða í löng­um röðum. Það ger­ir mér líka kleift að hafa eig­ur mín­ar með mér all­an tím­ann.“

Ljós­mynd/​Unsplash/​Yous­ef Al­fu­higi

3. Ef þú ert með inn­ritaða tösku, fjár­festu í staðsetn­ing­ar­búnaði

„Ég vildi óska þess að staðsetn­ing­ar­búnaður eins og Apple AirTag hefði verið til þegar ég var flug­freyja. Það er auðvelt að stinga þeim inn í ferðatösk­una þína til að hjálpa þér að finna tösk­ur sem eru á röng­um stað,“ seg­ir flug­freyj­an.

4. Settu skó í ör­ygg­is­hólfið á hót­el­inu til að muna eft­ir verðmæt­un­um

„Þegar þú set­ur dýr­mæt­ustu eig­ur þínar í ör­ygg­is­hólf hót­els­ins skaltu setja einn skó þar líka – helst þann skó sem þú ætl­ar að nota dag­inn sem þú ferð af hót­el­inu,“ út­skýr­ir hún.

5. Taktu lít­inn gufu­slétti með þér

Það eru ekki strau­járn á öll­um hót­el­um, en til að sleppa við að borga fyr­ir að láta strauja föt­in þín mæl­ir flug­freyj­an með að fólk taki ferðagufu­slétti með sér.

6. Sæktu þýðing­ar­for­rit í sím­ann þinn

„Þýðing­ar­for­rit hafa reynst mér vel í ferðum til staða þar sem enska er ekki al­mennt töluð. Jafn­vel þótt þýðing­in sé ekki full­kom­in hjálp­ar for­ritið þér að koma því sem þú vilt segja á fram­færi,“ seg­ir flug­freyj­an.

Ljós­mynd/​Pex­els/​Daria Obymaha
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert