Flottustu veitingastaðirnir í Lundúnum

Það er nóg af fallegum veitingastöðum í Lundúnum.
Það er nóg af fallegum veitingastöðum í Lundúnum. Samsett mynd

Það er mikið um að vera í Lund­ún­um næstu helgi þar sem krýn­ing Karls III Breta­kon­ungs mun meðal ann­ars fara fram. Borg­in er stút­full af dýr­ind­is veit­inga­stöðum með fjöl­breyttu úr­vali, allt frá rétt­um með skandi­nav­ísku ívafi yfir í bragðmikla rétti inn­blásna af Sri Lanka.

Ferðavef­ur mbl.is tók sam­an fimm flott­ustu veit­ingastaðina sem ættu bæði að gleðja augað og bragðlauk­ana.

Lyle's

Veit­ingastaður­inn Lyle's er án efa með skandi­nav­ísku ívafi, bæði í hönn­un og mat­ar­gerð. Kokk­ur staðar­ins, James Lowe, hef­ur meðal ann­ars starfað í Kaup­manna­höfn og sótti inn­blást­ur þangað. 

Staður­inn er í gam­alli te­verk­smiðju, en hönn­un hans ber þess merki og held­ur í hrá­an iðnaðarstíl­inn í bland við mýkri skandi­nav­íska hönn­un og nátt­úru­leg­an efnivið. Lowe töfr­ar fram fjóra vand­lega sam­setta rétti á hverju kvöldi, en mat­seðill­inn er breyti­leg­ur frá degi til dags.

Ljós­mynd/​Lyleslondon.com

Para­dise

Veit­ingamaður­inn Dom Fern­ando sæk­ir inn­blást­ur fyr­ir mat­seðil Para­dise til ömmu sinn­ar, en hann heim­sótti hana í bernsku til Sri Lanka. Það er al­vöru kikk í upp­skrift­um Fern­ando sem hef­ur töfr­ar fram bragðmikla rétti í Soho-hverf­inu.

Veit­ingastaður­inn er stíl­hreinn þar sem grá­ir, svart­ir og brún­ir tón­ar eru í aðal­hlut­verki. Hrá­ir kalk­málaðir vegg­irn­ir gefa staðnum mik­inn sjarma og karakt­er til móts við viðardrumba í lofti og leðurá­klæði sem hleypa hlýju inn í rýmið. 

Ljós­mynd/​Para­disesoho.com

Peters­ham Nur­series

Peters­ham er einn af ást­sæl­ustu veit­inga­stöðum Lund­úna, en það er mik­ill sjarmi yfir staðnum þar sem litagleðin ræður för. Stór­ar krist­als­ljósakrón­ur, plönt­ur og blóm og litaglöð mál­verk mæta hrárri áferð og mynda nota­lega stemn­ingu.

Mat­seðill­inn er fjöl­breytt­ur, en á sumr­in er hægt að sitja úti í sól­inni í guðdóm­leg­um garði.

Ljós­mynd/​Peters­hamn­ur­series.com

Nati­ve

Hjón­in Imo­gen Dav­is og Ivan Tis­dall-Dow­nes opnuðu þenn­an skemmti­lega veit­ingastað í Ma­yf­a­ir, en þeirra hug­mynda­fræði bygg­ir á engri sóun. Á mat­seðlin­um má finna klass­íska rétti sem slá í gegn.

Staður­inn er æv­in­týra­leg­ur þar sem skemmti­leg­ir lit­ir setja punkt­inn yfir i-ið.

Ljós­mynd/​Nati­v­erestaurant.co.uk

Lis­boeta

Portú­galski kokk­ur­inn Nuno Mendes hef­ur eldað víðsveg­ar um heim og hlotið tvær Michel­in-stjörn­ur. Á Lis­boeta eld­ar Mendes upp­skrift­ir frá heimalandi sínu, Portúgal, með úr­vali af dýr­ind­is rétt­um. 

Staður­inn hef­ur verið inn­réttaður á skemmti­leg­an og stíl­hrein­an máta. Lit­irn­ir tóna fal­lega sam­an við hús­gögn­in sem eru sér­lega form­fög­ur.

Ljós­mynd/​Mjmk.co.uk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert