EasyJet flýgur beint til Akureyrar

Flugfélagið easyJet flýgur ekki bara til Keflavíkur.
Flugfélagið easyJet flýgur ekki bara til Keflavíkur.

Flug­fé­lagið Ea­syJet hyggst fljúga beint frá Gatwick í London til Ak­ur­eyr­ar næsta vet­ur í áætl­un­ar­flugi. Flug­fé­lagið er þegar búið að opna fyr­ir bók­an­ir, en fyrsta flug­ferðin verður 31. októ­ber. Flogið verður tvisvar í viku, á þriðju­dög­um og laug­ar­dög­um, út mars 2024. 

Í til­kynn­ingu frá Markaðsstofu Norður­lands kem­ur fram að um nýja leið sé að ræða hjá flug­fé­lag­inu. „Ak­ur­eyri er höfuðstaður Norður­lands, sem býður upp á frá­bæra mögu­leika fyr­ir ferðamenn og er stutt frá aðdráttar­öfl­um nátt­úru, menn­ing­ar og sögu. Gest­ir geta notið hvala­skoðunar, farið í göngu­ferðir, fylgst með norður­ljós­um eða farið í böð á sama tíma og þau njóta út­sýn­is­ins sem svæðið býður upp á,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Ea­syJet.

Flug­fé­lagið er í sam­starfi við ferðaskrif­stof­una Ea­syJet Holi­days og því verður einnig boðið upp á pakka­ferðir til Norður­lands í tengsl­um við þess­ar flug­ferðir.

„Vetr­arflug Ea­syJet er afrakst­ur ára­langr­ar und­ir­bún­ings­vinnu og sam­starfs, þar sem ótal­mörg hafa lagt hönd á plóg. Þar spila sam­starfs­verk­efn­in Flug­klas­inn Air66N og Nature Direct lyk­il­hlut­verk. Með tveim­ur flug­ferðum til London viku­lega yfir vetr­ar­tím­ann verða til fjöl­mörg tæki­færi fyr­ir norðlenska ferðaþjón­ustu, sem get­ur sýnt hversu öfl­ug og sam­held­in hún er í því mark­miði að gera Norður­land að eft­ir­sótt­um áfangastað. Það má segja að nýr áfangastaður sé að verða til fyr­ir Breta með þess­um flug­ferðum, ein­mitt á þeim árs­tíma þar sem ró­legra hef­ur verið í ferðaþjón­ustu. Að sama skapi verður til spenn­andi val­mögu­leiki fyr­ir ferðalög heima­fólks og annarra at­vinnu­greina, bæði til Bret­lands en einnig í tengiflugi í gegn­um Gatwick.

Góð reynsla var af því vetr­arflugi sem boðið var upp á yfir vetr­ar­tím­ann fyr­ir nokkr­um árum beint frá Bretlandi til Ak­ur­eyr­ar. Ferðaþjón­usta á Norður­landi hef­ur unnið vel í vöruþróun og markaðssetn­ingu og það er nú að skila sér. Bú­ast má við allt að 1500 gistinótt­um á viku yfir vetr­ar­tím­ann með þess­ari nýju flug­leið. Því má vænta þess að flug Ea­syJet breyti þróun ferðaþjón­ustu á Íslandi með beinu aðgengi að Norður- og Aust­ur­landi,“ seg­ir Arn­heiður Jó­hanns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Markaðsstofu Norður­lands.

Í vetur verður hægt að fljúga beint frá Akureyri til …
Í vet­ur verður hægt að fljúga beint frá Ak­ur­eyri til London. AFP/​JOHANN­ES EISELE

Sigrún Björk Jak­obs­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Isa­via Inn­an­lands­flug­valla, fagn­ar ákvörðun breska flug­fé­lags­ins. „Það er mikið gleðiefni að Ea­syJet hafi ákveðið að hefja flug til Ak­ur­eyr­ar í vet­ur. Við tök­um vel á móti farþegum þeirra. Það er sér­stak­lega gam­an að fá þessa auknu um­ferð nú þegar stytt­ist í að viðbygg­ing við flug­stöðina verði tek­in í notk­un og öll­um fram­kvæmd­um á vell­in­um síðan lokið vorið 2024.“

Samn­ingaviðræðurn­ar við Ea­syJet má rekja aft­ur til árs­ins 2014. Áhugi flug­fé­lags­ins hef­ur auk­ist jafnt og þétt en segja má að ýms­ir stærri þætt­ir hafi gert það að verk­um að fé­lagið tók ekki ákvörðun um að fljúga til Ak­ur­eyr­ar fyrr en nú. Má þar nefna brott­hvarf Breta úr ESB, heims­far­ald­ur Covid og upp­bygg­ingu Ak­ur­eyr­arflug­vall­ar sem stærstu áhrifaþætt­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert