Sunneva og Sveppi sáu Harry Styles í Lundúnum

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir og sjónvarpsstjarnan Sverrir Þór Sverrisson fóru á …
Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir og sjónvarpsstjarnan Sverrir Þór Sverrisson fóru á Harry Styles tónleika í Lundúnum í gærkvöldi. Samsett mynd

Í gær­kvöldi steig tón­list­armaður­inn Harry Sty­les á svið á Wembley-leik­vang­in­um í Lund­ún­um. Marg­ir Íslend­ing­ar lögðu leið sína á völl­inn til að berja stór­stjörn­una aug­um, þar á meðal voru áhrifa­vald­ur­inn Sunn­eva Ein­ars­dótt­ir og sjón­varps­stjarn­an Sverr­ir Þór Sverris­son, bet­ur þekkt­ur sem Sveppi.

Sunn­eva hef­ur verið dug­leg að deila mynd­skeiðum frá kvöld­inu, bæði á In­sta­gram og TikT­ok, en hún fór á tón­leik­ana ásamt vin­kon­um sín­um þeim Birtu Líf Ólafs­dótt­ur og Hildi Sif Hauks­dótt­ur. 

Sunn­eva er hins veg­ar ekki sú eina sem hef­ur verið dug­leg á TikT­ok held­ur hef­ur leik­ar­inn Gísli Örn Garðars­son slegið ræki­lega í gegn á miðlin­um, en hann fór ásamt Sveppa og fríðu föru­neyti á tón­leik­ana eins og sjá má á mynd­skeiðinu. 

Það vantaði ekki upp á glamúr­inn og litagleðina hjá leikr­un­un­um frek­ar en hjá áhrifa­völd­un­um, en þau klæddu sig í anda Sty­les sem er þekkt­ur fyr­ir lit­rík­an og djarf­an fata­stíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert