Elska góða tónlist og góðan bjór

Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

Ein­ar Óskar Sig­urðsson, er eig­andi FLAKS á Pat­reks­firði ásamt eig­in­konu sinni, Guðnýju Gígju Skjald­ar­dótt­ur, en Ein­ar lýs­ir FLAKI sem list­hneigðu sam­komu­húsi. Á FLAKI er boðið upp á meira bjórúr­val en víðast hvar á lands­byggðinni og er gott að enda dag­inn þar eft­ir flakk um sunn­an­verða Vest­f­irði.

Þegar Ein­ar og Gígja kynnt­ust má segja að tveir vest­ur­hlut­ar hafi mæst. Hann er úr Vest­ur­bæ Reykja­vík­ur og hún af Vest­fjörðum. „Ég er úr Vest­ur­bæn­um og kon­an mín er upp­al­in á Patró en flutti í bæ­inn þegar hún var ung­ling­ur. Við fór­um heim aft­ur í mars 2020 þegar kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn hófst en við átt­um hús þar,“ seg­ir Ein­ar.

Hvernig var fyr­ir þig sem borg­ar­barn og ferðamála­fræðing að fara vest­ur?

„Það var æðis­legt. Frá­bært að vera með lít­il börn og gott að kúpla sig frá erl­in­um í borg­inni,“ seg­ir Ein­ar.

Gígja er tón­list­ar­kona og er í hljóm­sveit­inni Ylju en Ein­ar er bæði ljós­mynd­ari og ferðamála­fræðing­ur. „Við leggj­um mikið upp úr list­um og menn­ing­ar­lífi. Okk­ur fannst vanta sam­komu­stað fyr­ir menn­ingu og list­ir á sunn­an­verðum Vest­fjörðum,“ seg­ir Ein­ar um ástæðu þess að þau stofnuðu FLAK.

Tónleikar á Flaki á Patreksfirði
Tón­leik­ar á Flaki á Pat­reks­firði

Brugga eig­in bjór

Húsið sem FLAK er rekið í á sér langa sögu. „Húsið er í eigu hafn­ar­inn­ar og oft kallað ver­búðin en hef­ur aldrei verið ver­búð. Rýmið sem FLAK er í eru tveir beitn­inga­skúr­ar. Eld­húsið hjá okk­ur var frysti­klefi í öðrum beitn­inga­skúrn­um og hinn frysti­klef­inn er sýn­inga­rými og veit­inga­rýmið eru skúr­arn­ir sjálf­ir,“ seg­ir Ein­ar. Hann seg­ir nafnið vísa í hafið og geti í raun bæði þýtt fisk­flak eða báts­flak.

Hjón­in eru mikl­ir tón­list­ar­unn­end­ur og njóta þess að drekka góðan bjór. Þaðan er hug­mynd­in kom­in, að bjóða upp á hvort tveggja. „Þegar þú ferð út á land og ferð á flotta veit­ingastaði eða nota­legt kaffi­hús er bjórúr­valið oft frek­ar ein­falt. Ferðafólkið er ótrú­lega þakk­látt fyr­ir það þegar það kem­ur inn. Það á ekki von á því. Af hverju ekki að hafa gott úr­val úti á landi? Það er aðeins meiri vinna fyr­ir okk­ur en miklu ánægðari viðskipta­vin­ir fyr­ir vikið,“ seg­ir Ein­ar.

Und­an­far­in ár hafa hjón­in í FLAKI boðið upp á fiskisúpu með fersk­um fiski. Í súp­unni hafa einnig verið söl og blóðberg og aust­ur­lensk krydd svo það mættti segja að súp­an sé hvort tveggja í senn, asísk og ramm­ís­lensk. Í sum­ar verður hins veg­ar breyt­ing á og ætla þau að láta góða drykki, tónlist og góða stemn­ingu vera í aðal­hlut­verki um helg­ar. Heima­bruggaður bjór verður áfram í boði, barsn­arl og menn­ing­ar­viðburðir.

„Við brugg­um ann­ars veg­ar bjór sem heit­ir Flak sem er þurr­humlaður IPA-bjór. Þetta er létt­ur og góður bjór fyr­ir alla. Þú þarft ekki að vera sér­stak­ur bjóráhugamaður til að geta drukkið hann. Hins veg­ar erum við að brugga „stout“-bjór. Það er dökk­ur bjór sem heit­ir Alda og er nefnd­ur í höfuðið á eig­in­konu upp­á­haldsviðskipta­vin­ar okk­ar og einnig haf­inu. Þetta er til­einkað þeim tveim­ur. Við fór­um í sam­starf við upp­á­halds­brugg­húsið okk­ar sem heit­ir Mal­bygg og er í Reykja­vík og þróuðum upp­skrift­ina með þeim. Bjór­inn er aðeins fá­an­leg­ur á FLAKI.“

Rauðis­and­ur eins og Spánn

„Patró er ótrú­lega lít­ill og fal­leg­ur bær með versl­un­um, bíói, veit­inga­stöðum og tjaldsvæði. Pat­reks­fjörður er ró­leg­ur bær en best er að skella sér í skoðun­ar­ferð yfir dag­inn og enda hann svo á því að fara í sund og rölta niður á FLAK. Það er margt að sjá í ná­grenn­inu. Það eru bæ­irn­ir Bíldu­dal­ur og Tálkna­fjörður. Svo erum við með Látra­bjarg og Rauðasand og al­veg ógrynni af heit­um laug­um. Ótrú­lega fal­leg nátt­úra og ekki of mikið um að vera, nóg pláss fyr­ir alla,“ seg­ir Ein­ar. Hann seg­ir selj­ast hratt upp á öll hót­el en tjaldsvæðin eru fal­leg og góð. Hann mæl­ir til dæm­is með tjaldsvæðinu á Tálknafirði og seg­ir alltaf gam­an að koma í Flóka­lund.

„Rauðis­and­ur er upp­á­haldsstaður okk­ar fjöl­skyld­unn­ar. Við eig­um fjög­ur börn og þetta er bara svo ótrú­leg­ur staður og skemmti­legt að ganga þar. Það er æðis­legt að vera með börn á Rauðas­andi og þar er líka upp­á­hald­stjaldsvæðið mitt. Ég get farið þangað með börn­in í viku, þetta er eins og að vera á Spáni þegar veðrið er gott. Þau hlaupa út á sand­inn og synda í sjón­um. Það er líka kaffi­hús á Rauðas­andi sem er geggjað. Þetta er staður­inn til að fara í stutta dags­ferð frá Patró eða tjalda og vera lengi. Svo er æðis­legt að fara yfir á Tálkna­fjörð og fara í Poll­inn. Eða skella sér í nátt­úru­laug­ina í Reykjar­f­irði. Svo er hægt að skella sér upp á næst­um því öll fjöll. Frá Patró get­ur þú gengið meðal ann­ars upp á Geirs­eyr­ar­múla eða Kríu­vötn,“ seg­ir hann. Ein­ar seg­ir nóg um að vera á Pat­reks­firði og FLAKI í sum­ar. Bríet kom í annað sinn fram á FLAKI í byrj­un júní. Hljóm­sveit­in Brek kem­ur fram 27. júlí og Mug­i­son held­ur tón­leika 6. ág­úst svo eitt­hvað sé nefnt. Ein­ar seg­ir frítt inn á tón­leika og með hjálp styrkja frá meðal ann­ars Upp­bygg­ing­ar­sjóði Vest­fjarða og fyr­ir­tækj­un­um í bæn­um er hægt að fá tón­lista­menn til að koma langt að og spila.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert