Dýrasta sundferðin er í Reykjavík

Veðurblíða í Laugardalslaug.
Veðurblíða í Laugardalslaug. Ljósmynd/Sundlaugar.is

Und­an­farn­ar tvær vik­ur hef­ur veður­blíðan glatt íbúa höfuðborga­svæðis­ins og hafa marg­ir nýtt sól­ar­dag­ana í sund­ferð. Á höfuðborg­ar­svæðinu eru 18 sund­laug­ar sem all­ar hafa sinn sjarma, en sund­ferðin kost­ar hins veg­ar ekki jafn mikið í öll­um laug­un­um. 

Sam­kvæmt gjald­skrá sund­laug­anna er ódýr­st­asta sund­ferðin í Álfta­nes­laug og Ásgarðslaug í Garðabæn­um, en þar kost­ar stakt gjald fyr­ir full­orðna 830 krón­ur. Þá er frítt í sund fyr­ir börn til 17 ára ald­urs.

Næst ódýr­asta sund­ferðin er í Lága­fells­laug og Varmár­laug í Mos­fells­bæ. Þar kost­ar stakt gjald fyr­ir full­orðna slétt­ar 1.000 krón­ur og frítt í sund fyr­ir börn til 10 ára ald­urs, en börn á aldr­in­um 11 til 17 ára borga 175 krón­ur fyr­ir sund­ferðina. 

380 króna verðmun­ur á sund­ferðinni

Dýr­asta sund­ferðin er svo í Reykja­vík­ur­borg, en þar kost­ar stakt gjald fyr­ir full­orðna 1.210 krón­ur og er sund­ferðin því 380 krón­um dýr­ari þar en í Garðabæ. Í Reykja­vík er frítt fyr­ir börn til 16 ára ald­urs að fara í sund, en ung­menni frá 16 til 17 ára aldri borga 195 krón­ur fyr­ir ferðina. 

Þá er einnig dýr­ast að leigja sund­föt og hand­klæði í Reykja­vík, en þar kost­ar leigja á sund­föt­um 1.080 krón­ur og hand­klæði 720 krón­ur. Á Seltjarn­ar­nesi er ódýr­ast að leigja sund­föt og hand­klæði, en þar er greitt 1.350 krón­ur fyr­ir sund­föt og 1.500 krón­ur fyr­ir hand­klæði en þegar þeim er svo skilað inn eft­ir sund­ferðina fær fólk 1.000 krón­ur end­ur­greidd­ar.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert