Margar mjög fallegar gönguleiðir

Horft yfir Rauðubjörg á Gerpissvæðinu.
Horft yfir Rauðubjörg á Gerpissvæðinu.

Hild­ur Bergs­dótt­ir fé­lags­ráðgjafi flutti aust­ur árið 2005 og er enn jafn­heilluð af lands­hlut­an­um og fyr­ir tæp­um tveim­ur ára­tug­um. Hild­ur er úti­vistar­eld­hugi og flest þau verk­efni sem hún sinn­ir eiga það sam­eig­in­legt að stuðla að sjálfs­efl­ingu úti í aust­firskri nátt­úru og mörg þeirra snúa að ung­menn­um.

„Fjöl­breytt og víða óspillt und­ur­fög­ur og kraft­mik­il nátt­úr­an er klár­lega það sem heill­ar mig mest. En hér er líka blóm­legt sam­fé­lag sem er gott að til­heyra,“ seg­ir Hild­ur þegar hún er spurð hvað það er við Aust­ur­land sem heill­ar.

Hild­ur starfar mikið með ung­menn­um og er starfið í raun þríþætt. „Ég var með áfanga í Mennta­skól­an­um á Eg­ils­stöðum sem var ætlaður ungu fólki sem glímdi við ein­hvers kon­ar sál­fé­lags­leg­an vanda og vildi nýta reynslu­nám, nátt­úru, úti­veru, æv­in­týri og áskor­an­ir til að efla sig. Það var vetr­ar­lang­ur áfangi sem sam­an­stóð af viku­leg­um nátt­úru­stund­um og svo að minnsta kosti ein­um lengri leiðangri að vori þar sem dvalið er í nátt­úr­unni í fimm daga.

Ég er skóla­stýra og kenn­ari í Nátt­úru­skól­an­um en Nátt­úru­skól­inn eru ný­lega stofnuð fé­laga­sam­tök nokk­urra reynslu­mik­illa úti­veru­eld­huga sem starfa með það að mark­miði að efla og auðga tengsl, virðingu og þekk­ingu ungs fólks á nátt­úru og nærum­hverfi sínu. Þar fáum við grunn­skóla­hópa í nátt­úru­upp­lif­an­ir, úti­kennslu og jafn­vel lengri óbyggðaleiðangra. Við höf­um einnig prófað okk­ur áfram með ým­iss kon­ar nám­skeið, til dæm­is úti­kennslu og nám­skeið í reynslu­námi fyr­ir grunn­skóla­kenn­ara og sjálfs­efl­ing­ar­nám­skeið fyr­ir ung­linga þar sem við flétt­um sam­an nátt­úru- og listmeðferð,“ seg­ir Hild­ur, sem er einnig úti­vist­arþjálf­ari hjá Ung­menna­fé­lag­inu Þristi en þar er boðið upp á úti­vist­ar­nám­skeið fyr­ir börn.

Eru all­ir ung­ling­ar áhuga­sam­ir um um­hverfið og nátt­úr­una á Aust­ur­landi?

„Það er auðvitað mis­jafnt en ég held ég geti full­yrt að nær alltaf tekst okk­ur að finna ein­hvern vink­il á nátt­úr­unni sem heill­ar þau.“

Úr Óbyggðaferð Menntaskólans á Egilsstöðum um Víknaslóðir, Hvítserkur í bakgrunni.
Úr Óbyggðaferð Mennta­skól­ans á Eg­ils­stöðum um Víkna­slóðir, Hvítserk­ur í bak­grunni.

Finn­ur þú mun á krökk­un­um þegar þau byrja og þegar þau út­skrif­ast?

„Já það geri ég sann­ar­lega en auðvitað er það mis­mun­andi eft­ir verk­efn­um og þeim áhersl­um sem eru í starf­inu. Í styttri verk­efn­um er það oft­ast auk­in já­kvæðni, for­vitni og áhugi á að vera úti í nátt­úr­unni, sjá og upp­lifa enn fleira og finna tengsl­in við nátt­úr­una. En í áfang­an­um sem ég var með í Mennta­skól­an­um á Eg­ils­stöðum, þar sem ég fékk að vinna með þeim í heil­an vet­ur, fann ég mjög mik­inn mun á sjálfsþekk­ingu ung­ling­anna, trú á eig­in getu, sam­vinnu­hæfni, vilj­an­um til að taka ábyrgð, sýna frum­kvæði og tengj­ast nátt­úr­unni og í raun bara eiga heil­steypt­ari og já­kvæðari mynd af sjálf­um sér og líf­inu. Í þess­um áfanga gafst ein­mitt rými og tími til að vinna vel með alla þessa þætti og nátt­úr­an var nýtt í hví­vetna til þess.“

Af hverju er mik­il­vægt fyr­ir okk­ur öll að kom­ast í tengsl við um­hverfið okk­ar?

„Fyr­ir mér erum við öll órjúf­an­leg­ur hluti af nátt­úr­unni og hún af okk­ur, þó svo að nú­tíma­tækni og -líferni hafi sann­ar­lega bjagað þau tengsl. Það er mér dýr­mætt að geta lagt mitt af mörk­um til að efla tengsl, skiln­ing, virðingu og vænt­umþykju barna og ung­linga í garð nátt­úr­unn­ar og ég tel að með því megi líka styrkja þessa sömu til­finn­ingaþætti í eig­in garð. Ef okk­ur tekst að ala upp kyn­slóðir sem búa yfir gagn­kvæmri virðingu og kær­leika fyr­ir sjálf­um sér, líf­inu og nátt­úr­unni þá erum við á sama tíma að ala upp kyn­slóðir sem um­gang­ast nátt­úr­una og lífið af alúð og virðingu.“

Óspillt nátt­úr­an heill­ar

Hvert ferð þú þegar þú vilt hreinsa hug­ann og kom­ast aðeins út í nátt­úr­una?

„Það er svo­lítið mis­jafnt eft­ir árstíðum en mér finnst und­ur­gott að vera í óspilltri nátt­úru þar sem ég hvorki sé né heyri neitt mann­gert. Ég sæki mikið í Hall­ormsstaðaskóg og finnst nota­legt að eiga sam­veru með trján­um, fugla­söng og lyn­gang­an þar. Ég bregð mér líka gjarn­an á SUB eða róðrar­bretti sem maður stend­ur á á Eiðavatni og nýt þess að róa þar um á kyrr­lát­um dög­um um­vaf­in birkilm og öldu­gjálfri. Mér finnst líka oft gott að sitja við hafið og finna kraft­inn sem streym­ir frá því og þarf þá vissu­lega aðeins að færa mig um set, þar sem ég bý á Eg­ils­stöðum, en staðir eins og Skála­nes, Landsendi, Hólma­nes og Stapa­vík eru ekki langt und­an sem bet­ur fer.“

Áttu þér upp­á­halds­nátt­úruperlu?

„Já al­veg nokkr­ar, Húsa­vík á Víkna­slóðum er í miklu upp­á­haldi og ég þreyt­ist aldrei á að dást að fjalla­hringn­um þar í kring.“

Hvert mæl­ir þú með að fara í göngu ef fólk vill kynn­ast Aust­ur­landi í einni ferð?

„Það er ekki gott að segja en við eig­um marg­ar mjög fal­leg­ar, fjöl­breytt­ar og til­komu­mikl­ar göngu­leiðir sem eru svo virki­lega vel þess virði að fara, til dæm­is í Lóns­ör­æfi, Víkna­slóðir, Stór­urð og Gerp­is­svæðið.“

Hvað ætl­ar þú að gera í sum­ar?

„Ég verð aðeins að leiðsegja í sum­ar, bæði á Víkna­slóðum og Gerp­is­svæðinu, ég kemst von­andi á Hornstrand­ir með mann­in­um mín­um sem er búið að vera draum­ur lengi og svo stefni ég á að vera bara sem mest úti í nátt­úr­unni, fót­gang­andi með tjaldið mitt á bak­inu og krakk­ana mína vapp­andi mér við hlið,“ seg­ir Hild­ur en hún er meðal ann­ars með upp­lif­un­ar­ferðir fyr­ir kon­ur um Gerp­is­svæðið ásamt Lindu Phers­son með Tanna Tra­vel þar sem mark­miðið er að fara hæg­ar yfir, njóta og næra. Auk þess fer hún í styttri og lengri göng­ur með barna­fjöl­skyld­um í aust­firskri nátt­úru með Ferðafé­lagi Fljóts­dals­héraðs.

Hildur veit fátt betra en að vera úti í náttúrunni, …
Hild­ur veit fátt betra en að vera úti í nátt­úr­unni, í öll­um veðrum og vind­um.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert