48 tímar í Portó: Vínekrur, sigling og arkitektúrperlur

Blaðamaður ferðavefs mbl.is skellti sér í vikulangt ferðalag til Portó …
Blaðamaður ferðavefs mbl.is skellti sér í vikulangt ferðalag til Portó í Portúgal í sumar. Samsett mynd

Por­tó var meðal vin­sæl­ustu áfangastaða Íslend­inga í sum­ar, enda spenn­andi borg sem býður upp á merka sögu, fal­leg­an arki­tekt­úr og ljúf­fenga mat­ar­senu. Blaðamaður ferðavefs mbl.is var meðal þeirra sem freistuðust til að heim­sækja borg­ina í sum­ar og upp­lifði portú­galska töfra beint í æð.

Por­tó er önn­ur stærsta borg Portú­gals og er byggð þvert yfir hæðir sem ná niður að bökk­um Douro-ár­inn­ar. Eft­ir viku­langt ferðalag um borg­ina eru nokkr­ir staðir sem standa upp úr og ættu að vera á dag­skrá allra sem leggja leið sína til borg­ar­inn­ar.

Að gera

Sigl­ing á Douro-ánni

Douro-áin er ein stærsta á Portú­gals og Spán­ar, alls 765 km að lengd. Hún á upp­tök sín ná­lægt Soria á Spáni og renn­ur alla leið til Por­tó þar sem hún mæt­ir hafi. 

Það er til­valið að skella sér í sigl­ingu á Douro-ánni, en þannig er hægt að upp­lifa stór­an hluta borg­ar­inn­ar á stutt­um tíma. Það er ein­stakt sjón­arspil að horfa upp þétt byggðar hæðirn­ar sem liggja niður að ánni. 

Sjónarspilið er ekki síður fallegt á kvöldin, en það er …
Sjón­arspilið er ekki síður fal­legt á kvöld­in, en það er dá­sam­legt að ganga meðfram ánni í ljósa­skipt­un­um. mbl.is/​Irja Grön­dal

Vín­ekr­urn­ar í Douro-daln­um

Douro-dal­ur­inn er staðsett­ur í um eins og hálfs tíma akst­urs­fjar­lægð frá Por­tó og dreg­ur nafn sitt af Douro-ánni sem renn­ur eft­ir daln­um. Það er vel þess virði að leggja leið sína í dal­inn enda er hann elsta af­markaða vín­hérað í heimi. 

Þegar keyrt er inn í dal­inn taka á móti manni hæðir full­ar af guðdóm­leg­um vín­ekr­um þar sem aðallega eru ræktuð ber í púrt­vín. Það er vel hægt að mæla með ferð á vín­ekr­urn­ar fyr­ir alla ferðalanga og líka þá sem drekka ekki vín, en nátt­úru­feg­urðin og friðsæld­in í daln­um upp­fylla all­ar vænt­ing­ar og meira en það.

Heimsókn í Douro-dalinn er ómissandi hluti af ferðalagi til Portó.
Heim­sókn í Douro-dal­inn er ómiss­andi hluti af ferðalagi til Por­tó. mbl.is/​Irja Grön­dal
Vínekrurnar eru sannkölluð paradís.
Vín­ekr­urn­ar eru sann­kölluð para­dís. mbl.is/​Irja Grön­dal

Að skoða

Dom Luís-brú­in

Douro-áin spil­ar áfram lyk­il­hlut­verk á meðmæla­list­an­um, en það er erfitt að kom­ast hjá því að skoða hina frægu Dom Luís-brú sem ligg­ur yfir ána á milli Por­tó og Vila Nova de Gaia. Brú­in býr yfir merkri sögu en hún var hönnuð af nem­anda Gusta­ve Eif­fel, mann­in­um á bakvið hinn fræga Eif­fel-turn í Par­ís.

Dom Luís-brú­in er þó ekki eina brú­in í Por­tó, en það er merki­legt að skoða brýrn­ar sem liggja yfir Douro-ána. Þær eru marg­ar hverj­ar gríðarlega háar og setja án efa sterk­an svip á borg­ina.

Hægt er að slá tvær flugur í einu höggi og …
Hægt er að slá tvær flug­ur í einu höggi og skoða brýrn­ar frá skemmti­legu sjón­ar­horni á sigl­ingu um Douro-ána. mbl.is/​Irja Grön­dal

Ri­beira-hverfið 

Það er ein­stakt að ganga um Ri­beira-hverfið sem ligg­ur meðfram Douro-ánni. Hverfið er eitt af elstu hverf­um borg­ar­inn­ar og hef­ur verið á heims­minja­skrá UNESCO frá ár­inu 1996.

Por­tó ætti ekki að vera lengi að heilla arki­tekt­úr­unn­end­ur upp úr skón­um, en borg­in er þekkt fyr­ir barokk, nýklass­ísk­an og mód­ern­ísk­an bygg­ing­ar­stíl. Það sem ein­kenn­ir hins veg­ar Ri­beira-hverfið eru terrocotta-flísa­lögð þök, pastellituð hús, ein­stak­ar málaðar portú­galsk­ar flís­ar og skær­ar hurðir.

Byggingarstíllinn í hverfinu er afar sjarmerandi.
Bygg­ing­ar­stíll­inn í hverf­inu er afar sjarmer­andi. mbl.is/​Irja Grön­dal
Í Portó má þó finna ýmsa byggingarstíla sem gleðja augað.
Í Por­tó má þó finna ýmsa bygg­ing­ar­stíla sem gleðja augað. mbl.is/​Irja Grön­dal

Gist­ing

M.Ou.Co hót­el

Það er tvennt sem stóð upp úr á þessu hót­eli – afar fal­leg hönn­un og virki­lega nota­leg sund- og sólbaðsaðstaða. Hót­elið er staðsett á góðum stað í Por­tó og býr yfir ein­stakri fag­ur­fræði.

Það er óhætt að segja að það hafi verið mik­il upp­lif­un að gista á hót­el­inu, en það fell­ur ekki ein­ung­is vel í kramið hjá hönn­unar­unn­end­um held­ur einnig tón­list­ar­unn­end­um. Á fyrstu hæð hót­els­ins er vínyl­plötusafn og í hverju her­bergi er vínyl­plötu­spil­ari sem skap­ar skemmti­lega stemn­ingu.

Þetta skapaði skemmti­leg­an kontr­ast til móts við ró­andi um­hverfi og mini­malíska hönn­un hót­els­ins sem gerði ferðina enn eft­ir­minni­legri.

Fagurfræði hótelsins greip augað um leið og gengið var inn.
Fag­ur­fræði hót­els­ins greip augað um leið og gengið var inn. mbl.is/​Irja Grön­dal
Vínylplötusafnið var afar fallega innréttað.
Vínyl­plötusafnið var afar fal­lega inn­réttað. mbl.is/​Irja Grön­dal
Sundlaugin og sólbaðsaðstaðan var afar notaleg og falleg í takt …
Sund­laug­in og sólbaðsaðstaðan var afar nota­leg og fal­leg í takt við rest­ina af hót­el­inu. mbl.is/​Irja Grön­dal

Mat­ur og drykk­ur

Mendi

Ind­verski veit­ingastaður­inn Mendi toppaði ferðina al­gjör­lega. Þangað voru farn­ar tvær ferðir, ein fýlu­ferð í byrj­un ferðar­inn­ar þar sem komið var að lokuðum dyr­um, og önn­ur ferð í lok ferðar­inn­ar þar sem bragðlauk­arn­ir komust í sann­kallaða para­dís.

Fýluferðin varð vel þess virði þegar kræsingarnar voru smakkaðar í …
Fýlu­ferðin varð vel þess virði þegar kræs­ing­arn­ar voru smakkaðar í seinni ferðinni. mbl.is/​Irja Grön­dal

Borða við ána

Það er nauðsyn­legt að eyða einni kvöld­stund hið minnsta við Douro-ána, en meðfram ánni er að finna fjölda spenn­andi veit­ingastaða og kaffi­húsa. Það ætti því að vera auðvelt fyr­ir alla að finna eitt­hvað við hæfi og enda kvöldið svo á því að rölta meðfram ánni og fylgj­ast með sól­setr­inu.

Einstakt sjónarspil tók á móti manni þegar sólin fór að …
Ein­stakt sjón­arspil tók á móti manni þegar sól­in fór að lækka. mbl.is/​Irja Grön­dal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert