Það sem íslenskir fagurkerar elska við Köben

Kaup­manna­höfn er í miklu upp­á­haldi hjá Íslend­ing­um og kjósa marg­ir Íslend­ing­ar að skreppa þangað í borg­ar­ferðir á haust­in. Þegar ferðalang­ar og fag­ur­ker­ar eru tekn­ir tali kem­ur gamli höfuðstaður­inn oft­ar en ekki fyrst upp þegar spurt er hver upp­á­halds­borg­in er. 

Katrín Aagestad Gunn­ars­dótt­ir, markaðsstjóri Nova. 

„Kaup­manna­höfn á alltaf stað í hjarta mínu en ég bjó þar í fimm ár og kynnt­ist borg­inni ótrú­lega vel. Ég fékk líka mik­inn áhuga á borg­ar­skipu­lagi eft­ir að hafa upp­lifað hvað gott skipu­lag ger­ir fyr­ir mann sem íbúa,“ sagði Katrín í síðastliðið haust þegar hún var spurð út í upp­á­halds­borg­ina sína. 

Katrín Aagestad Gunn­ars­dótt­ir.
Katrín Aagestad Gunn­ars­dótt­ir. Ljós­mynd/ Arn­ar Freyr Wade Tóm­as­son

Elísa Viðars­dótt­ir, mat­væla- og nær­ing­ar­fræðing­ur og knatt­spyrnu­kona.

„Ég er al­gjör­lega ást­fang­in af Kaup­manna­höfn, hún hef­ur upp á allt mögu­legt að bjóða. Menn­ingu, mat og versl­un,“ sagði knatt­spyrnu­kon­an og nær­ing­ar­fræðing­ur­inn Elísa Viðars­dótt­ir þegar hún var spurð út í sína upp­á­halds­borg. 

Elísa Viðarsdóttir.
Elísa Viðars­dótt­ir. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Rakel Ósk Guðbjarts­dótt­ir, snyrti­fræðing­ur og eig­andi snyrti­vöru­versl­un­ar­inn­ar El­iru­Beauty í Smáralind.

„Ætli ég verði ekki að segja Kaup­manna­höfn, ég bjó þar og átti al­veg ynd­is­lega tíma. Frá­bær mat­ar­menn­ing, fal­leg­ar bygg­ing­ar og viðmót Dan­ans gagn­vart líf­inu,“ sagði Rakel um borg­ina sína Kaup­manna­höfn. 

Rakel Ósk Guðbjartsdóttir.
Rakel Ósk Guðbjarts­dótt­ir. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Svana Lovísa Kristjáns­dótt­ir, hönnuður og blogg­ari á Svart á hvítu. 

„Kaup­manna­höfn er mín allra mesta upp­á­halds­borg og ég fæ ekki nóg af henni, all­ar minn­ing­arn­ar, mann­lífið, lífs­stíll­inn, hönn­un­in og versl­an­irn­ar,“ sagði Svana þegar hún var spurð hver sín upp­á­halds­borg væri. 

Svana Lovísa Kristjánsdóttir.
Svana Lovísa Kristjáns­dótt­ir. Ljós­mynd/​Al­dís Páls­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert