Íslensk flugfreyja deilir skotheldri förðunarrútínu

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Förðun­ar­fræðing­ur­inn og flug­freyj­an Andrea Una Fer­reira deildi á dög­un­um förðun­ar­rútínu sinni fyr­ir flug á TikT­ok, en hún var á heim­leið eft­ir stutt stopp í Baltimore í Banda­ríkj­un­um. 

    Andrea byrj­ar á því að nota Lait Créme Concentré-dag­kremið frá Embryol­is­se og Ultra Sheer-ser­um frá Neutrogena með sól­ar­vörn yfir allt and­litið og niður háls­inn. Eins og flest­ir vita er mik­il­vægt að huga vel að húðinni í háloft­un­um og gefa henni góðan raka.

    Því næst not­ar hún farðagrunn áður en hún set­ur Sheer Glow-farðann frá Nars yfir and­litið. Þegar hún hef­ur blandað farðanum vel og vand­lega not­ar hún Born this Way-hylj­ar­ann frá Too Faced, en hún hef­ur hylj­ar­ann nokkr­um tón­um ljós­ari en farðann og not­ar hann því bæði til að hylja og birta ákveðin svæði á and­lit­inu.

    Geggjað „vara-kom­bó“ set­ur punkt­inn yfir i-ið

    Að því loknu not­ar hún HD Pro-hylj­ar­ann frá L.A. Girl í dökk­um tón til að skyggja and­litið og bland­ar vör­unni svo vand­lega með bursta. Því næst not­ar hún púður und­ir augu til að tryggja að hylj­ar­inn hald­ist á sín­um stað allt flugið og gríp­ur svo sólar­púður og kinna­lit. 

    Andrea fyll­ir inn í auga­brún­irn­ar og mót­ar þær með brún­um lit, set­ur á sig maskara og end­ar svo á því að nota vara­blý­ant, varalit og varag­loss sem setja punkt­inn yfir i-ið. 

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert