Hildur Sif kveður Lundúnir

Hildur Sif Hauksdóttir kveður Lundúni eftir að hafa verið búsett …
Hildur Sif Hauksdóttir kveður Lundúni eftir að hafa verið búsett þar í tvö ár. Skjáskot/Instagrm

Hild­ur Sif Hauks­dótt­ir, áhrifa­vald­ur og sér­fræðing­ur hjá Salt­Pay, greindi frá því á dög­un­um að hún væri að kveðja Lund­ún­ir eft­ir að hafa verið bú­sett þar und­an­far­in tvö ár. 

Ný­verið birti Hild­ur Sif mynd­band á In­sta­gram þar sem hún hafði sett sam­an nokkr­ar vel vald­ar minn­ing­ar frá borg­inni, en við mynd­bandið skrifaði hún: „Að kveðja Lund­úni eft­ir bestu tvö árin – ily.“

Í LXS vin­konu­hópn­um

Hild­ur Sif var í hópi fjög­urra Íslend­inga sem ráðnir voru til starfa hjá fjár­tæknifyr­ir­tæk­inu Salt­Pay á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins í Lund­ún­um, en fyr­ir það hafði hún starfað hjá Salt­Pay í eitt og hálft ár. 

Þá hef­ur Hild­ur Sif einnig hluti af vin­konu­hópn­um LXS sem hafa vakið mikla at­hygli á sam­fé­lags­miðlum hér á landi og í sam­nefnd­um raun­veru­leikaþátt­um, en Hild­ur Sif er þó ekki í raun­veru­leikaþátt­un­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert