Einstök jólastemning í Lapplandi

Lappland er ólíkt öllum öðrum stöðum.
Lappland er ólíkt öllum öðrum stöðum. Samsett mynd

Lapp­land, stærsta og nyrsta hérað Finn­lands, minn­ir helst á atriði úr klass­ískri jóla­mynd. Héraðið er snævi þakið frá nóv­em­ber til maí og ferðast því marg­ir bæj­ar­bú­ar um á sleða.

Í Lapp­landi er dag­legt brauð að rek­ast á hrein­dýr, en dýr­in ráfa um göt­urn­ar og gleðja bæði gang­andi og ak­andi veg­far­end­ur. Héraðið hef­ur í fjölda ára heillað unn­end­ur jól­anna en marg­ir heim­sækja hið geysi­vin­sæla jóla­sveinaþorp, Santa Claus Villa­ge, í Rovaniemi, stærstu borg Lapp­lands. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert