„Ég bræddi drónann minn til að ná þessu skoti“

Ljósmyndarinn Vince Tonk náði mögnuðu sjónarhorni af eldgosinu við Litla-Hrút …
Ljósmyndarinn Vince Tonk náði mögnuðu sjónarhorni af eldgosinu við Litla-Hrút í júlí 2023. Samsett mynd

Ljós­mynd­ar­inn Vince Tonk hef­ur vakið mikla at­hygli á TikT­ok síðastliðinn sól­ar­hring. Í gær birti hann magnað mynd­band sem hann náði af eld­gos­inu við Litla-Hrút í júlí 2023, en til þess að ná mynd­band­inu þurfti hann að fórna drón­an­um sín­um sem bráðnaði við tök­urn­ar.

Tonk birti mynd­bandið fyrst á TikT­ok síðastliðið sum­ar og hlaut það yfir 5,6 millj­ón­ir áhorfa. Í gær end­ur­birti hann svo mynd­bandið á miðlin­um, en á ein­ung­is ein­um sól­ar­hring höfðu yfir 6 millj­ón­ir horft á það. Það er ekki ólík­legt að áhug­ann megi að ein­hverju leyti rekja til eld­goss sem hófst norðan við Grinda­vík síðastliðið mánu­dags­kvöld. 

„Ætti ég að fara aft­ur?“

„Ég bræddi drón­ann minn til að ná þessu magnaða skoti af eld­gosi á Íslandi. Nýtt eld­gos hófst í gær. Ætti ég að fara aft­ur?“ skrifaði Tonk við mynd­bandið.

„Ég hef ekki hug­mynd um pen­inga­legt tjón en ég held að þetta sé magnaðasta mynd­efni af eld­fjalli sem ég hef séð,“ skrifaði einn not­andi við mynd­bandið og virðast marg­ir hafa verið sam­mála, en yfir 11 þúsund settu „læk“ við um­mæl­in. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert