Sjáðu gististaðina sem slógu í gegn á árinu

Þetta eru gististaðirnir sem vöktu hve mesta athygli lesenda ferðavefs …
Þetta eru gististaðirnir sem vöktu hve mesta athygli lesenda ferðavefs mbl.is árið 2023! Samsett mynd

Það var nóg af um­fjöll­un um fal­lega hönn­un á eft­ir­sókna­verðum gististöðum um all­an heim á ár­inu. Eft­ir­far­andi fimm frétt­ir vöktu hve mesta at­hygli les­enda árið 2023!

Hönn­un­ar­villa Haf­steins og Guðrún­ar í Mosó

Hönn­un­ar­villa Haf­steins Helga Hall­dórs­son­ar og Guðrún­ar Öglu Eg­ils­dótt­ur í Mos­fells­bæ vakti mesta lukku meðal les­enda ferðavefs mbl.is árið 2023. Haf­steinn og Guðrún eru greini­lega mikl­ir fag­ur­ker­ar og hafa inn­réttað húsið á sjarmer­andi máta. 

Drauma­hót­el fyr­ir hönn­unar­unn­end­ur í Kö­ben

Hót­elið The Audo sem er við Norður­höfn í Kaup­manna­höfn féll vel í kramið hjá les­end­um, enda mik­il hönn­un­ar­p­ara­dís í einni af elstu bygg­ing­um svæðis­ins. Hót­elið er í sam­stafi við mörg leiðandi arki­tekta- og hönn­un­ar­fyr­ir­tæki í Evr­ópu og eru þar reglu­lega haldn­ir skemmti­leg­ir viðburðir þar sem hönnuðir og arki­tekt­ar geta skapað tengsl og miðlað þekk­ingu sín á milli.

Lúx­us í sveit­inni

Þessi lúx­us­bú­staður í Michigan-fylki í Banda­ríkj­un­um vakti einnig at­hygli, en hann er afar sjarmer­andi með lúx­us yf­ir­bragði. Bú­staðinn hannaði Kels­ey Duda með það að leiðarljósi að láta gest­um líða eins og heima hjá sér þrátt fyr­ir að vera uppi í sveit.

Útsýn­isperla í Skotlandi

Les­end­ur virt­ust einnig falla fyr­ir þess­um hönn­un­ar­bú­staði sem staðsett­ur er í sveit­um Perth og Kin­ross í Skotlandi. Hann hef­ur verið inn­réttaður á fal­leg­an máta með ró og nota­leg­heit í for­grunni. Útsýnið frá bú­staðnum set­ur svo punkt­inn yfir i-ið!

Ein­stök hönn­un í villu á Skáni

Inn­lit í Vipp Shelter-vill­una á Skáni vakti einnig mikla lukku meðal les­enda. Vill­an er í eigu danska hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Vipp, en Íslend­ing­ar ættu að þekkja rusla­föt­ur þeirra og smá­hluti sem prýða heim­ilið. Húsið er byggt úr stáli en meg­in­uppistaðan er stál­grind með renn­andi gluggarömm­um sem ná frá gólfi til lofts. Þetta er ein­stök hönn­un!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert