Þrumuguð í laxveiði, sænsk fyrirsæta í Reynisfjöru og fótboltagoðsögn

Þetta eru stjörnurnar sem heimsóttu Ísland árið 2023!
Þetta eru stjörnurnar sem heimsóttu Ísland árið 2023! Samsett mynd

Ísland virt­ist vera vin­sæll áfangastaður meðal fræga og ríka fólks­ins árið 2023. Chris Hemsworth, Tra­vis Scott, Emm­anu­el Macron og Fern­ando Tor­res voru meðal þeirra stjarna sem heim­sóttu Ísland á ár­inu.

Chris Hemsworth

Stór­leik­ar­inn Chris Hemsworth kom til lands­ins ásamt dótt­ur sinni Indiu Rose í októ­ber. Feðgin­in áttu æv­in­týra­lega daga á klak­an­um og fóru meðal ann­ars í laxveiði, hesta­ferð, klif­ur og fjór­hjóla­ferð. 

Backstreet Boys

Hljóm­sveit­in Backstreet Boys gerði allt vit­laust þegar þeir komu til Íslands í apríl og héldu tón­leika í Laug­ar­dals­höll­inni.

Hanna Schön­berg

Sænska fyr­ir­sæt­an Hanna Schön­berg heim­sótti Ísland í ág­úst. Hún kom til lands­ins í mynda­töku fyr­ir fata­merkið NA-KD, en mynd­irn­ar voru meðal ann­ars tekn­ar við Selja­lands­foss og í Reyn­is­fjöru.

Jane Seymour

Enska leik­kon­an Jane Seymour kom til lands­ins í júlí. Heim­sókn­in henn­ar var viðburðarrík, en þegar hún lenti á klak­an­um tóku á móti henni jarðskjálft­ar og síðan eld­gos við Litla-Hrút.

Rick Steves

Banda­ríski ferðabóka­höf­und­ur­inn og sjón­varps­maður­inn Rick Steves lét langþráðan draum sinn ræt­ast þegar hann kom til Íslands í júlí, en hann festi kaup á notaðri lopa­peysu úr ís­lenskri ull á flóa­markaði í Reykja­vík. 

Emm­anu­el Macron

Emm­anu­el Macron, for­seti Frakk­lands, mætti til lands­ins í maí vegna leiðtoga­fund­ar Evr­ópuráðsins. Hann heim­sótti að sjálf­sögðu Þing­velli og smellti þar mynd af sér.

Tra­vis Scott

Banda­ríski rapp­ar­inn Tra­vis Scott kom til lands­ins í júní, en talið er að hann hafi komið hingað til að taka upp tón­list­ar­mynd­band fyr­ir nýju plöt­una sína.

Martha Stew­art

Sjón­varps­stjarn­an Martha Stew­art kom til Íslands í ág­úst, en hún fór meðal ann­ars í heim­sókn í ís­lensku súkkulaðigerðina Omnom og skellti sér í Sky Lagoon. 

Amy Poehler

Banda­ríska leik­kon­an Amy Poehler kom til lands­ins í júlí og birti mynd­band frá ferðinni á TikT­ok. Hún heim­sótti hina ýmsu staði, til dæm­is Bláa Lónið, Geysi og Skóla­vörðustíg.

Cole Sprou­se

Leik­ar­inn Cole Spour­se sást á gangi um Lauga­veg­inn í Reykja­vík í júlí þar sem hann sást heilsa aðdá­end­um sín­um. 

Kevin McKidd

Leik­ar­inn Kevin McKidd, sem er lík­lega hve þekkt­ast­ur fyr­ir hlut­verk sitt í lækna­dram­anu Grey's Anatomy, kom til Íslands í fe­brú­ar og heim­sótti leik­kon­una og rit­höf­und­inn Berg­ljótu Arn­alds. 

Jon­as Gahr Støre

For­sæt­is­ráðherra Nor­egs, Jon­as Gahr Støre, kom til Íslands í maí þar sem hann mætti á leiðtoga­fund Evr­ópuráðsins. Hann mætti þó ekki ein­ung­is í Hörp­una þar sem fund­ur­inn var hald­inn held­ur líka í heita pott­inn í Sund­höll Reykja­vík­ur.

Lor­een

Sænska tón­list­ar­kon­an Lor­een, sem sigraði Eurovisi­on-keppn­ina 2023, kom til lands­ins í maí. Hún sást meðal ann­ars á Parlia­ment-hót­el­inu við Aust­ur­völl, en stuttu áður hafði hún ýjað að sam­starfi við ís­lensk­an tón­list­ar­mann. 

Isa­belle Hupp­ert

Franska stór­leik­kon­an Isa­belle Hupp­ert kom til lands­ins í lok sept­em­ber, en hún hlaut heiður­sverðlaun Alþjóðlegu kvik­mynda­hátíðar­inn­ar í Reykja­vík. 

Manu­el Neu­er

Þýski knatt­spyrnumaður­inn Manu­el Neu­er, mar­kvöður Byern München og þýska landsliðsins, kom til lands­ins í júlí og gæddi sér meðal ann­ars á bjór á Hvols­velli.

Just­in Trudeau

Just­in Trudeau for­sæt­is­ráðherra Kan­ada kom til Íslands í júní og birti mynd af sér skæl­bros­andi á Skóla­vörðustígn­um í Reykja­vík og óskaði fólki gleðilega hinseg­in daga.

Dan Brown

Banda­ríski saka­mála­höf­und­ur­inn Dan Brown kom til lands­ins í nóv­em­ber og sótti Ice­land Noir-bók­mennta­hátíðina ásamt unn­ustu sinni.

Fern­ando Tor­res

Spænska knatt­spyrnugoðsögn­in Fern­ando Tor­res, sem lék meðal ann­ars með Li­verpool, Chel­sea, AC Mil­an og Atlético Madrid, kom til Íslands í júní. 

Kacey Mus­gra­ves

Banda­ríska kántrí­söngg­kon­an Kacey Mus­gra­ves kom til Íslands í októ­ber. Hún skellti sér í Bláa Lónið í ekta ís­lensku óveðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert