Þoldi ekki Ísland en mælir með þessum stöðum

Þetta eru staðirnir á Íslandi sem heilluðu Annabel Fenwick Elliott.
Þetta eru staðirnir á Íslandi sem heilluðu Annabel Fenwick Elliott. Samsett mynd

Ný­verið birti Anna­bel Fenwick Elliott, bresk­ur pistla­höf­und­ur á Tel­egraph, pist­il um upp­lif­un sína af því að búa á Íslandi. Hún varð hug­fang­in af land­inu eft­ir þriggja daga ferðalag árið 2018. Fjór­um árum síðar flutti hún til lands­ins ásamt fjöl­skyldu sinni en sá fljótt eft­ir því. 

Í pistl­in­um seg­ir Elliott Ísland vera frá­bær­an stað til að ferðast á en hræðileg­an stað til að búa á. Hún mæl­ir með að all­ir ferðalang­ar geri eft­ir­far­andi fimm hluti þegar þeir heim­sækja Ísland. 

Kíktu í nátt­úru­laug­ar

„Fyrst, Bláa Lónið. Já, þetta er það ferðamanna­leg­asta sem þú get­ur gert, en ekki að ástæðulausu – þessi hlýja, ljós­bláa jarðhitasúpa er dá­sam­leg. Það er bar sem hægt er að synda upp að, kís­il­leir til að skella á all­an lík­amann og margt fýsi­legt. Ef þú átt pen­inga til að brenna skaltu skoða Retreat-hót­elið á svæðinu,“ seg­ir Elliott.

Hún mæl­ir einnig með ferð í Sky Lagoon, þá helst að kvöldi til, og böðunum í Hvamms­vík með út­sýni yfir hafið. 

Að mati Elliott er Bláa Lónið ómissandi.
Að mati Elliott er Bláa Lónið ómiss­andi. mbl.is/​Eyþór Árna­son

Heim­sókn til Vest­manna­eyja

„Eitt best geymda leynd­ar­mál Íslands, sem við frétt­um ekki einu sinni af fyrr en stuttu áður en við flutt­um í burtu, er hin litla eyja Heima­ey sem er hluti af Vest­manna­eyj­um og í aðeins 45 mín­útna fjar­lægð með ferju frá meg­in­land­inu,“ seg­ir Elliott.

„Hún er heim­kynni stærstu lunda­byggðar heims og fyrsta griðasvæði hvít­hvala, svo dýra­lífs­unn­end­ur verða í skýj­un­um. Vertu svo viss um að eyða að minnsta kosti einni nóttu í Glamp­ing & Camp­ing í Vest­manna­eyj­um þar sem þú get­ur sofið í „rustísk­um“ Hringa­drott­ins­sögu­leg­um skál­um rétt við strönd­ina,“ bæt­ir hún við. 

Elliott segir Vestmannaeyjar vera eitt best geymda leyndarmál Íslands.
Elliott seg­ir Vest­manna­eyj­ar vera eitt best geymda leynd­ar­mál Íslands. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Skelltu þér í þyrluflug

Unnusti Elliott starfaði sem þyrluflugmaður á Íslandi þegar þau voru bú­sett hér, en hún seg­ir hann hafa flogið með fullt af rík­um viðskipta­vin­um sem hafi reglu­lega ferðast með þyrl­um. „Þeir sögðu stöðugt að þetta væri magnaðasta land sem þeir hefðu flogið yfir, og það er í raun eng­in önn­ur leið til að sjá svo mikið af því og frá slíku sjón­ar­horni á ein­um degi,“ seg­ir hún. 

Elliott mælir með því að fólk skoði landið í þyrlu.
Elliott mæl­ir með því að fólk skoði landið í þyrlu. mbl.is/​RAX

Farðu í ljós­mynda­ferð

„Ljós­mynda­áhuga­fólk sem eru í leit að fal­leg­um mynd­um til að fanga í næsta fríi sínu finna varla betri stað en Ísland; það er heils­árss­in­fón­ía eld­fjalla, jökla, fossa og hvera,“ seg­ir Elliott og mæl­ir með ferðum á veg­um franska ljós­mynd­ar­ans Kévin Pagès.

Íslenska náttúran er algjör draumur fyrir ljósmyndaáhugafólk.
Íslenska nátt­úr­an er al­gjör draum­ur fyr­ir ljós­mynda­áhuga­fólk. mbl.is/​Rax

Upp­lifðu Suður­land

Elliott seg­ir suma af áhuga­verðustu stöðum lands­ins vera á suður­landi, allt frá Selja­lands­fossi og Skóga­fossi yfir í ís­hella við Kötlu og svarta sand­strönd við Vík.

Suðurlandið klikkar aldrei!
Suður­landið klikk­ar aldrei! mbl.is/Á​rni Sæ­berg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert