Íslenskar stjörnur sólgnar í skíðafrí í janúar

Íslenskar stjörnur virðast sólgnar í skíðafrí í janúar!
Íslenskar stjörnur virðast sólgnar í skíðafrí í janúar! Samsett mynd

Íslensk­ar stjörn­ur virðast ekki vilja taka áhætt­una og treysta á að ís­lensku veðurguðirn­ir skili góðu púðri í brekk­urn­ar í janú­ar. Þess í stað leita þær út fyr­ir land­stein­ana og virðast sólgn­ar í skíðafrí þar sem dag­arn­ir snú­ast bara um að skíða og drekka kakó eða bjór!

Ferðavef­ur mbl.is tók sam­an lista yfir nokkr­ar stjörn­ur sem hafa notið þess að renna niður snævi þakt­ar skíðabrekk­ur er­lend­is í janú­ar.

Skúli Mo­gensen og Gríma Björg Thor­ar­en­sen

Skúli Mo­gensen, at­hafnamaður og frum­kvöðull, og Gríma Björg Thor­ar­en­sen inn­an­húss­arki­tekt, eru í töfr­andi skíðafr­íi um þess­ar mund­ir. Þau hafa verið dug­leg að ferðast, en í nóv­em­ber fóru þau í mánaðarfrí til Balí í Indó­nes­íu. 

Skúli og Gríma alsæl í brekkunni.
Skúli og Gríma al­sæl í brekk­unni. Skjá­skot/​In­sta­gram

Rúrik Gísla­son

Fyrr­ver­andi knatt­spyrnumaður­inn og IceGuys-stjarn­an Rúrik Gísla­son er stadd­ur í Kitzbühel í Tirol í Aust­ur­ríki, en af mynd­um að dæma virðist hann vera þar á veg­um Boss. 

Jón Ragn­ar Jóns­son

Með Rúrik í Aust­ur­ríki er ljós­mynd­ar­inn Jón Ragn­ar Jóns­son, oft þekkt­ur sem Jon From Ice­land. 

Jón Ragnar og Rúrik í brekkunni.
Jón Ragn­ar og Rúrik í brekk­unni. Skjá­skot/​In­sta­gram

Andrea Magnús­dótt­ir

Fata­hönnuður­inn Andrea Magnús­dótt­ir skellti sér í skíðaferð til Sa­al­bach-Hinterg­lemm í Salzburg í Aust­ur­ríki. 

Krist­ín Pét­urs­dótt­ir

Leik­kon­an Krist­ín Pét­urs­dótt­ir hef­ur verið í skíðafr­íi ásamt kær­asta sín­um Þor­vari Bjarma Harðar­syni und­an­farna daga, en þau hafa notið til hins ýtr­asta í Spei­ereck sem einnig er í Salzburg í Aust­ur­ríki. 

Krist­ín og Þor­var voru þó alls ekki ein í brekk­unni, en með þeim voru for­eldr­ar Krist­ín­ar þau Pét­ur Gaut­ur Svavars­son mynd­list­armaður og Berg­lind Guðmunds­dótt­ir, bróðir henn­ar Starkaður Pét­urs­son leik­ari, Áslaug Friðriks­dótt­ir aðstoðarmaður rík­is­stjórn­ar­inn­ar, Ásthild­ur Bára Jens­dótt­ir markaðsstjóri, Odd­ur Atla­son yf­ir­barþjónn og Kjart­an Bill­ich Odda­son graf­ísk­ur hönnuður. Al­vöru stemn­ing það!

Helga Þóra Bjarna­dótt­ir

Helga Þóra Bjarna­dótt­ir, sem er dótt­ir Bjarna Bene­dikts­son­ar ut­an­rík­is­ráðherra, renndi sér niður brekk­urn­ar í Lech am Arlberg í Vor­arlberg í Aust­ur­ríki á snjó­bretti fyrr í janú­ar. Með henni í ferðinni voru meðal ann­ars bróðir henn­ar, Bene­dikt Bjarna­son, og móðir henn­ar Þóra Mar­grét Bald­vins­dótt­ir. 

Ragn­ar Sig­urðar­son

Inn­an­húss­arki­tekt­inn Ragn­ar Sig­urðsson virðist hafa átt ljúf­ar stund­ir í skíðabrekk­unni í Hems­dal í Viken í Nor­egi.

Sara Davíðsdótt­ir

Þjálf­ar­inn og flug­freyj­an Sara Davíðsdótt­ir er stödd í Mayr­hofen í Tirol í Aust­ur­ríki um þess­ar mund­ir, en hún virðist vera hæst­ánægð með þessa byrj­un á ár­inu. 

Jón Axel Ólafs­son

Jón Axel Ólafs­son, út­varps­maður á K100, skellti sér í skíðaskóla í Sëlva í Tirol í Aust­ur­ríki. Hér er hann ásamt kenn­ar­an­um og bekkj­ar­fé­lög­un­um. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Jon Axel Olafs­son (@jon­ax­el)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert