Jón Gnarr mælir með Hrísey

Af myndum að dæma var Jón Gnarr alsæll með ferð …
Af myndum að dæma var Jón Gnarr alsæll með ferð sína út í Hrísey. Skjáskot/Instagram

Á dög­un­um fór Jón Gn­arr í ferð út í Hrís­ey í Eyjaf­irði ásamt skemmti­leg­um leik­hópi. Jón virt­ist afar hrif­inn af eyj­unni er marka má færsl­ur hans á In­sta­gram.

„Fór í dá­sam­lega ferð útí Hrís­ey með leik­hópn­um í And Björk of cour­se … en leik­stjór­inn okk­ar Gréta Krist­ín er ein­mitt fædd og upp­al­in þar. Fór­um í búðina, í sund, skoðuðum há­karla­safnið og enduðum í góm­sæt­um fish and chips á Ver­búðin 66. Þetta var í fyrsta en ekki síðasta skipti sem ég heim­sæki þessa merki­legu eyju. Margt mjög spenn­andi að ger­ast þarna!“ skrifaði hann við myndaröð úr ferðinni. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Jón Gn­arr (@jongn­arr)

View this post on In­sta­gram

A post shared by Jón Gn­arr (@jongn­arr)

Gekk 258 km í janú­ar

Jón hef­ur eytt þó nokkr­um tíma á Norður­landi síðustu vik­ur þar sem hann er að æfa leik­verkið And Björk of cour­se eft­ir Þor­vald Þor­steins­son á Ak­ur­eyri sem verður frum­sýnt í lok fe­brú­ar.

Hann virðist kunna vel við sig í þess­um lands­hluta og hef­ur notið þess að fara í göng­ur með hund­inn sinn, en hann gekk hvorki meira né minna en 258 km í janú­ar. Ný­verið sagði hann frá því á In­sta­gram að hann reyndi að ganga 10 þúsund skref á dag, en hann læt­ur kulda og snjó sann­ar­lega ekki stoppa sig í því. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Jón Gn­arr (@jongn­arr)

View this post on In­sta­gram

A post shared by Jón Gn­arr (@jongn­arr)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert