Margrét fór í draumaferð til „Ibiza alpanna“

Það var stuð og stemning hjá Margréti Bjarnadóttur og vinahópi …
Það var stuð og stemning hjá Margréti Bjarnadóttur og vinahópi hennar í Ischgl í Austurríki. Samsett mynd

Mar­grét Bjarna­dótt­ir bæj­ar­full­trúi í Garðabæ skellti sér í sann­kallaða drauma­ferð til aust­ur­ríska skíðabæj­ar­ins Ischgl í Tíról-héraði. 

Fjöl­marg­ir Íslend­ing­ar hafa byrjað nýja árið í snævi þökt­um skíðabrekk­um í Aust­ur­ríki, þar á meðal systkini Mar­grét­ar, þau Helga Þóra Bjarna­dótt­ir og Bene­dikt Bjarna­son, en þau nutu sín til hins ýtr­asta ásamt móður sinni Þóru Mar­gréti Bald­vins­dótt­ur í Lech am Arlberg í Aust­ur­ríki.

Sann­kölluð skíðap­ara­dís

Mar­grét var þó ekki í fjöl­skyldu­ferð í þetta skiptið held­ur í góðra vina hópi, en af mynd­um að dæma vantaði ekki upp á stuðið. Mik­il stemn­ing og frá­bær­ar brekk­ur ein­kenna skíðabæ­inn sem hef­ur oft verið kallaður „Ibiza alp­anna“. Hann er staðsett­ur í 1.377 metra hæð yfir sjáv­ar­máli og er hæsti tind­ur svæðis­ins í 2.872 metra hæð. 

Bær­inn fékk þó óheppi­legra viður­nefni árið 2020 þegar hann komst í heims­frétt­irn­ar sem „mekka kór­ónu­veirunn­ar“, en bær­inn var snemma skil­greind­ur sem áhættu­svæði vegna fjölda ferðamanna sem greind­ust með kór­ónu­veiru­smit eft­ir að hafa verið þar á skíðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert