5 bestu norðurljósastaðir heims

Á listanum eru bestu norðurljósastaðir heims!
Á listanum eru bestu norðurljósastaðir heims! Samsett mynd

Norður­ljós­in hafa mikið aðdrátt­ar­afl og eru ferðalang­ar oft til­bún­ir að ferðast lang­ar leiðir til þess að líta þau aug­um. Ferðavef­ur Tra­vel and Leisure tók sam­an lista yfir bestu norður­ljós­astaði heims. 

Fair­banks, Alaska

Fair­banks í Alaska ligg­ur beint und­ir norður­ljósakraga sem þýðir að frá ág­úst­mánuði til loka apr­íl­mánaðar fær bær­inn reglu­lega magnaða ljósa­sýn­ingu. Mestu lík­urn­ar á því að sjá norður­ljós­in eru á milli klukk­an 11:00 og 02:00.

Yfir vetrarmánuðina er ekki óalgengt að sjá norðurljós í Alaska.
Yfir vetr­ar­mánuðina er ekki óal­gengt að sjá norður­ljós í Alaska. Ljós­mynd/​Unsplash/​Tayl­or Murp­hy

Nor­eg­ur

Íbúar í Nor­egi kippa sér ekki upp við norður­ljósa­sýn­ing­ar, sér­stak­lega ekki á Sval­b­arða þar sem svo­kölluð pólnótt, eða ei­líft myrk­ur, er frá miðjum nóv­em­ber til fe­brú­ar. Sval­b­arði er jafn­framt eini byggði staður­inn þar sem þú get­ur séð norður­ljós á dag­inn. Tromsø í Norður-Nor­egi er einnig góður norður­ljós­astaður, en bær­inn er und­ir norður­ljósakraga.

Það er ekki skortur á góðum norðurljósastöðum í Noregi.
Það er ekki skort­ur á góðum norður­ljósa­stöðum í Nor­egi. Ljós­mynd/​Unsplash/​Johny Go­erend

Finn­land

Lapp­land í Finn­landi, norður við heim­skauta­baug­inn, er stór­kost­leg­ur staður til að upp­lifa norður­ljós. Norður­ljós­in birt­ast að meðaltali yfir 200 næt­ur á ári, svo lík­urn­ar á því að upp­lifa norður­ljós þar eru ansi góðar. 

Finnland er sannkölluð norðurljósaparadís.
Finn­land er sann­kölluð norður­ljósap­ara­dís. Ljós­mynd/​Unsplash/​Lucas Marcom­ini

Græn­land

Lít­il ljós­meng­un og gott skyggni á mörg­um stöðum í Græn­landi ger­ir það að verk­um að mikl­ir mögu­leik­ar eru á að upp­lifa norður­ljós­in. Í Kan­gerlussu­aq eru um það bil 300 heiðskýr­ar næt­ur yfir árið sem eru kjöraðstæður fyr­ir norður­ljósa­sýn­ingu. 

Á Grænlandi er gott skyggni fyrir norðurljós á mörgum stöðum.
Á Græn­landi er gott skyggni fyr­ir norður­ljós á mörg­um stöðum. Ljós­mynd/​Unsplash/​Mads Schmidt Rasmus­sen

Ísland

Ísland laðar að sér fjölda ferðamanna á ári hverju sem halda í von­ina um að sjá norður­ljósa­dans. Í grein­inni er sér­stak­lega mælt með því að fara út fyr­ir höfuðborg­ar­svæðið til þess að sjá bestu norður­ljós­in. Þá eru tvö hót­el nefnd þar sem gott er að sjá norður­ljós, ann­ars veg­ar Hót­el Rangá og hins veg­ar Ion Advent­ure hót­elið.

Sjónarspilið er oft töfrandi í Kanada.
Sjón­arspilið er oft töfr­andi í Kan­ada. Ljós­mynd/​Unsplash/​Bill Allen
Ísland er að sjálfsögðu á listanum!
Ísland er að sjálf­sögðu á list­an­um! Ljós­mynd/​Unsplash/​Luke Stackpoole
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert