Allt á útopnu þegar Herbert mætti til Washington

Þorrablót Íslendingafélagsins í Washington
Þorrablót Íslendingafélagsins í Washington

Íslend­inga­fé­lagið í Washingt­on DC í Banda­ríkj­un­um hélt ár­legt þorra­blót um síðustu helgi þar sem um 130 manns gæddu sér á þjóðleg­um ís­lensk­um mat. Erna Há­kon­ar Pom­ren­ke, vara­formaður fé­lags­ins til síðustu 12 ára, seg­ir stemn­ingu hafa verið mjög góða og all­ar veit­ing­ar í föstu og fljót­andi formi runnið vel ofan í mann­skap­inn.

Tón­list­armaður­inn Her­bert Guðmunds­son og son­ur hans Gummi mættu til Washingt­on og sáu til þess að þorra­blóts­gest­ir tjúttuðu á dans­gólf­inu og tóku vel und­ir í lög­um Hebba á borð við Can't walk Away og Með stjörn­un­um.

Kokk­arn­ir Kjart­an Daní­els­son, Jón Þór og Jón Vill sáu um mat­inn en að sögn Ernu tókst vel að afla allra matarfanga, enda sé Ísland í þeirri sér­stöðu miðað við mörg önn­ur lönd að fá að flytja inn kjöt­meti að heim­an. Helsti styrkt­araðili blóts­ins var fyr­ir­tækið Kerec­is og Gunn­ar Birg­is­son, eig­andi Reykja­vik Crea­mery, sá til þess að blóts­gest­ir fengu skyr­rétt í eft­ir­rétt.

Á þorra­blót­inu var það einnig kynnt að Íslend­inga­fé­lagið ætl­ar að veita tvo náms­styrki í ís­lensku­námi við há­skóla­set­ur Vest­fjarða í sum­ar, með verk­efn­inu Gef­um ís­lensku séns. Nýr formaður fé­lags­ins er Sara Edda Clark.

Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Kokkarnir á þorrablótinu.
Kokk­arn­ir á þorra­blót­inu. Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
Ljós­mynd/​Erna Há­kon­ar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert