Rúrik djammaði með ofurfyrirsætu og frægum leikara í Mexíkó

Rúrik Gíslason fagnaði afmæli sínu með ofurfyrirsætunni Alessöndru Ambrosio og …
Rúrik Gíslason fagnaði afmæli sínu með ofurfyrirsætunni Alessöndru Ambrosio og leikaranum Lucien Laviscount. Samsett mynd

Lífið virðist leika við IceGuys-stjörn­una og fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­mann­inn Rúrik Gísla­son, en hann hef­ur verið dug­leg­ur að ferðast um heim­inn og er um þess­ar mund­ir stadd­ur á sann­kölluðu lúx­us­hót­eli í Mexí­kó. 

Hót­elið sem um ræðir er á Ri­viera Maya-svæðinu í Mexí­kó og er glæ­nýtt hót­el und­ir hatti Ed­iti­on-keðjunn­ar. Rúrik virðist hafa átt góðar stund­ir á hót­el­inu, en þann 25. fe­brú­ar síðastliðinn fagnaði hann af­mæli sínu og opn­un hót­els­ins með trylltu par­tíi þar sem hann djammaði meðal ann­ars með of­ur­fyr­ir­sæt­unni Al­essöndru Am­brosio og Em­ily in Par­is-leik­ar­an­um Lucien Laviscount. 

Rúrik birti skemmti­lega myndaröð frá kvöld­inu á In­sta­gram-síðu sinni, en af mynd­um að dæma vantaði sann­ar­lega ekki upp á stuðið. Með hon­um á mynd­un­um voru stjörn­ur úr hinum ýmsu átt­um, þar á meðal leik­kon­an Karru­eche Tran sem skaust fyrst upp á stjörnu­him­in­inn þegar hún byrjaði með tón­list­ar­mann­in­um Chris Brown árið 2011. 

Dug­leg­ur að djamma með fræg­um

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rúrik djamm­ar með stór­stjörn­um, en í nóv­em­ber síðastiðnum mætti hann í stjörn­um prýtt hrekkja­vökupartí of­ur­fyr­ir­sæt­unn­ar Heidi Klum í New York-borg. 

Þar hitti hann marga fræga, þar á meðal eft­ir­sótt­ustu TikT­ok-stjörn­ur heims úr hinum geysi­vin­sæla Elevator Boys-hópi, en hann hafði kynnst strák­un­um á viðburði í Þýskalandi um sum­arið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert