Bríet naut lífsins á Balí

Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar skellti sér til Balí í febrúar.
Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar skellti sér til Balí í febrúar. Samsett mynd

Tón­list­ar­kon­an Bríet Ísis Elf­ar naut lífs­ins til hins ýtr­asta á Balí í Indó­nes­íu ný­verið, en hún skellti sér þangað í sann­kallað drauma­frí. 

Bríet er ein af þeim sem ákváðu að flýja kuld­ann og myrkrið í fe­brú­ar og safna kröft­um á sól­rík­ari slóðum. Hún hef­ur birt nokk­ur mynd­bönd frá ferðinni á TikT­ok-reikn­ingi sín­um, en eins og sést er um­hverfið á Balí töfr­um lík­ast og margt að upp­lifa þar. 

Af mynd­bönd­un­um að dæma hef­ur Bríet notið þess að vera í sól­inni og upp­lifað menn­ing­una á Balí, en hún birti einnig mynd­band af skemmti­legri æf­ingu sem hún tók við sund­laug­ar­bakk­ann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert