Flugfreyja gefur góð ráð við flugþreytu

Þetta eru góð ráð við flugþreytu!
Þetta eru góð ráð við flugþreytu! Ljósmynd/Colourbox

Ferðalög­um í háloft­un­um get­ur fylgt flugþreyta, en al­geng ein­kenni henn­ar eru erfiðleik­ar með svefn, þreyta, uppþemba, hægðat­regða og höfuðverk­ur. 

Flug­freyj­ur hafa mikla reynslu úr háloft­un­um og luma því oft á góðum ferðaráðum, en á dög­un­um birt­ist grein á ferðavef Condé Nast Tra­vell­er með góðum ráðum við flugþreytu.

Haltu þér vak­andi

Ef komu­tími er síðdeg­is eða um kvöld á áfangastað mæl­ir fyrr­ver­andi flug­freyj­an Bobby Laurie með því að fólk reyni að halda sér vak­andi fyr­ir og í flug­inu. Hún seg­ir að það muni auka lík­urn­ar á að fólk finni fyr­ir þreytu þegar það lend­ir og geti þar af leiðandi farið beint upp í rúm að sofa þegar það kem­ur upp á hót­el og vaknað end­ur­nært dag­inn eft­ir. 

„Ef þú lend­ir fyrr um dag­inn skaltu stilla vekj­ara­klukku og leggja þig. Vaknaðu, njóttu þess sem eft­ir er dags­ins og þú ætt­ir að vera orðin nógu þreytt/​ur til að fara að sofa um kvöldið, en þannig still­ir þú lík­ams­klukk­una að nú­ver­andi tíma­belti,“ bæt­ir hún við. 

Það er mikilvægt að skipuleggja sig í kringum svefninn!
Það er mik­il­vægt að skipu­leggja sig í kring­um svefn­inn! Ljós­mynd/​Unsplash/​Giulia Squillace

Fáðu þér kaffi og ban­ana

Laurie spurði hóp af sam­starfs­fólki sínu hvað væri besta ráðið til að losna við flugþreytu. Al­geng­asta svarið var að fá sér kaffi, en koff­ínið gef­ur auka orku og hjálp­ar fólki að aðlag­ast nýju tíma­belti. 

Þeir sem drekka ekki kaffi treysta á ban­ana, en hann er stút­full­ur af víta­mín­um og nátt­úru­leg­um sykri sem gef­ur góða orku sem end­ist. 

Kaffi getur hjálpað heilmikið!
Kaffi get­ur hjálpað heil­mikið! Ljós­mynd/​Unsplash/​Den­is Zag­orodniuc

Farðu út og hreyfðu þig

Laurie ræddi við flug­freyju frá Kali­forn­íu að nafni Michella Marqu­ez, en hún seg­ir að hreyf­ing sé ein leið til að halda lík­am­an­um virk­um, aðlag­ast nýju tíma­belti og þreyta sig fyr­ir svefn­inn. Sjálf er hún dug­leg að fara út að ganga til að vinna gegn flugþreytu. 

Hreyfing og útivera geta gert kraftaverk!
Hreyf­ing og úti­vera geta gert krafta­verk! Ljós­mynd/​Unsplash
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert