Féll fyrir Berlín og flutti ekki aftur heim

Sólveig María Gunnarsdóttir segir Berlínarbúa duglega að fara í lautarferðir.
Sólveig María Gunnarsdóttir segir Berlínarbúa duglega að fara í lautarferðir. Ljósmynd/Aðsend

Sól­veig María Gunn­ars­dótt­ir flutti til Berlín­ar í fyrra og féll al­veg fyr­ir borg­inni. Borg­in býður upp á ódýr­an lífstíl og þar er alltaf eitt­hvað skemmti­legt að ger­ast. 

„Ég og kærast­inn minn flutt­um út ný­árs­dag 2023. Ég hafði þá ekki komið til Berlín­ar áður en ég út­skrifaðist með B.A. í arki­tekt­úr frá LHÍ sum­arið 2022. Okk­ur hafði langað að flytja út sam­an og ég gat fengið Era­smus-styrk fyr­ir starfs­námi í hálft ár og hafði þá um sum­arið sótt um á arki­tekta­stof­um í Berlín eft­ir að hafa komið okk­ur sam­an um að þar gæti verið gam­an að búa næsta hálfa árið. Síðan vor­um við ekki al­veg til­bú­in að koma heim eft­ir sum­arið og mér bauðst vinna á ann­arri stofu síðasta haust,“ seg­ir Sól­veig um ástæðu þess að hún flutti til Berlín­ar. 

Telst Berlín ennþá ódýr borg? 

„Já hún er ennþá ódýr, bæði í Þýskalandi og vissu­lega miðað við sam­bæri­leg­ar stór­borg­ir. Þrátt fyr­ir það hef­ur kaup­mátt­ur lækkað eitt­hvað á síðustu árum. Bæði eft­ir covid og svo hef­ur stríðið í Úkraínu hækkað orku­verð, sem þar af leiðandi hækk­ar leigu­verð. Það er hús­næðiskreppa í allri Evr­ópu, ekki bara á Íslandi. Berlín býður upp á ódýr­an lífstíl, ódýr­ar al­menn­ings­sam­göng­ur, mikið af frí­um viðburðum og það er alltaf hægt að fá sér döner eða fala­fel á fjór­ar til sex evr­ur.“

Sólveig María Gunnarsdóttir flutti til Berlínar eftir nám í arkitektúr.
Sól­veig María Gunn­ars­dótt­ir flutti til Berlín­ar eft­ir nám í arki­tekt­úr.

Hvað er það sem heill­ar þig helst við borg­ina?

„Þegar hún vakn­ar af dvala á vor­in. Hér finn­ur maður marga fal­lega al­menn­ings­garða og nóg af hlut­um sem hægt er að gera fyr­ir lít­inn pen­ing. Það er gam­an að fylgj­ast með fólki á öll­um aldri að lifa líf­inu eins og tán­ing­ar. Fjöl­breyti­leg menn­ing­ar­lega opin borg og skemmti­leg and­rúms­loft. Það er alltaf eitt­hvað að ger­ast og maður lær­ir að losna við allt „fómó“ þar sem það eru spenn­andi hlut­ir að ger­ast á hverju strái.“

Gömlu myndaklefarnir eru einkennandi fyrir Berlín.
Gömlu mynda­klefarn­ir eru ein­kenn­andi fyr­ir Berlín. Ljós­mynd/​Aðsend

Mik­il saga í arki­tekt­úrn­um

Hvað er það sem heill­ar þig við arki­tekt­úr­inn í Berlín? 

„Það er svo gam­an að lesa í bygg­ing­arn­ar, margt hægt að læra, bæði af því sem fór vel og verr. Borg­in er bútasaum­ur af mis­mun­andi arki­tekt­úr, illa sprengd í seinna stríði og svo tví­skipt með vest­ræn­um og sov­ésk­um áhrif­um. Mikið af til­raun­um og bygg­ing­um sem áttu að leysa vanda hvers tíma­bils fyr­ir sig.“

Sólveig hefur komið auga á áhugaverðan og tilraunakenndar arkitektúr í …
Sól­veig hef­ur komið auga á áhuga­verðan og til­rauna­kennd­ar arki­tekt­úr í Berlín. Ljós­mynd/​Aðsend
Það er að finna fjölbreyttan byggingarstíl í Berlín.
Það er að finna fjöl­breytt­an bygg­ing­ar­stíl í Berlín.

En hvernig er tísk­an í borg­inni? 

„Tísk­an er mjög fjöl­breytt og það er gam­an að sjá fólk tjá sig á mis­mun­andi hátt í gegn um hana. Það eru mjög flott­ar „curati­onal vinta­ge“ búðir, hver búð með sinn stíl. Fólk á öll­um aldri versl­ar mikið í vinta­ge búðum eða kaup­ir merkja­vör­ur sem líta samt út fyr­ir að vera notuð. Tísk­an helst al­veg í hend­ur við tísku­sveifl­ur á net­inu en er oft aðeins hrárri og frjáls­legri. Mis­mun­andi stíl­um blandað sam­an, eins og arki­tekt­úr­inn. En auðvitað finn­urðu líka þess­ar klass­ísku Berlín­ar steríótýp­ur sem flakka milli klúbba í sunnu­dags­dress­inu, öllu svörtu og síðum leður­jakka.“ 

Hjól­ar í gegn­um Neukölln og Kr­euz­berg

Áttu upp­á­halds­hverfi? 

„Ég hef mest búið í Neukölln og þykir mjög vænt um skít­ug­ar göt­urn­ar þar, svo vinn ég í Kr­euz­berg og hjóla því í gegn­um þessi tvö hverfi, sem stund­um eru kölluð Kr­euzKölln, alla virka daga. Í þess­um hverf­um má finna ara­grúa af góðum veit­inga­stöðum, kaffi­hús­um og bör­um og svo er markaður við May­bachufer kana­l­inn þris­var í viku.“

Maybachufer-kanallinn er fallegur.
May­bachufer-kanall­inn er fal­leg­ur. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvar finnst þér skemmti­leg­ast að versla í borg­inni?

„Ég er alltaf að upp­götva nýj­ar vinta­ge búðir en í Neukölln eru marg­ar góðar á sama radíus  til dæm­is Sing Black bird, Wsiura, JunoJuno og enn fleiri. Svo eru flóa­markaðir um helg­ar á mis­mun­andi stöðum í borg­inni og mér finnst mjög gam­an að fara þangað að gramsa.“

Það er skemmtilegt að gramsa á flóamörkuðum í Berlín um …
Það er skemmti­legt að gramsa á flóa­mörkuðum í Berlín um helg­ar. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig er drauma­dag­ur­inn í borg­inni?

„Drauma­dag­ur­inn er klár­lega um sum­ar, vakna og fara í bröns með góðum vin­um, rölta í kring­um May­bachufer, stoppa í kaffi og leyfa sér að slaka á í fal­leg­um garði. Fá sér eitt­hvað gott að borða og enda á bar eða klúbbi og dansa út nótt­ina.“

Áttu upp­á­haldsveit­ingastað, kaffi­hús eða bar?

„La Mai­son á Paul Lincke Ufer býður upp á besta bakk­elsið í hverf­inu og svo er Natanja und Heinrich hver­fiskaffi­húsið okk­ar. Af góðum veit­inga­stöðum mæli með Babel í Prenz­lau­er Berg, sem býður upp á besta líb­anska mat­inn í bæn­um. Kitten Deli í Neukölln býður upp á frá­bær­an mat ættaðan frá botni Miðjarðar­hafs, og svo er Café Frieda í Prenz­lau­er Berg geggjaður staður ef maður vill splæsa aðeins – frá­bær mat­ur, nóg af nátt­úru­vín­um og góð stemn­ing. Ann­ars er bestu pizzuna í bæn­um að finna steinsnar frá íbúðinni okk­ar á Pizzer­ia Far­ina.“

Í Berlín er að finna góðan mat frá mismunandi heimshornum.
Í Berlín er að finna góðan mat frá mis­mun­andi heims­horn­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Mik­il­vægt að taka ró­leg­an dag

Hvað er ómiss­andi að sjá og gera þegar fólk fer í fyrsta sinn til Berlín­ar í borg­ar­ferð?

„Fara sér ekki um of og ætla sjá allt á ein­um degi. Mæli með að eiga einn túrista­dag, fara frá safna­eyj­unni og ganga að minn­is­merk­inu um hel­för­ina. En enn mik­il­væg­ara er að eiga einn af­slappaðan dag og rölta um. Mæli líka ein­dregið með að leigja sér hjól og skoða borg­ina þannig, hún er mjög flöt og þar af leiðandi auðvelt að hjóla. Tem­p­el­hof-flug­völl­ur­inn á sum­ar sunnu­degi er ein­stak­ur og þar hægt að fá smjörþef­inn af grill, tjilli og piknikk sem Berlín­ar­bú­ar stunda.“

Búið er að breyta Tempelhof-flugvellinum í almenningsgarð.
Búið er að breyta Tem­p­el­hof-flug­vell­in­um í al­menn­ings­garð.

Hef­ur eitt­hvað komið þér á óvart við borg­ina?

„Hvað hún er ótrú­lega stór, níu sinn­um stærri en Par­ís, þess vegna eru fullt af hverf­um sem ég hef varla heim­sótt og ekki hægt að láta sér leiðast. Svo er svo mikið af börn­um og leik­völl­um úti um allt sem er svo gam­an. Í leiðin­legri kant­in­um þá er það skriffinnsk­an og skort­ur­inn á leigu­hús­næði. Við enduðum á að flytja fjór­um sinn­um á fimm fyrstu mánuðunum. Hef líka heyrt af því að það sé stund­um auðveld­ara að fá svar frá op­in­ber­um stofn­un­um i gegn­um fax held­ur en tölvu­pósti.“

Sólveig segir ódýrt að ferðast með almenningssamgöngum í Berlín og …
Sól­veig seg­ir ódýrt að ferðast með al­menn­ings­sam­göng­um í Berlín og þægi­legt að hjóla. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert