Elti kærustuna til Árósa og samdi plötu

Fannar Ingi Friðþjófsson í Hipsumhaps samdi plötu í Árósum en …
Fannar Ingi Friðþjófsson í Hipsumhaps samdi plötu í Árósum en hann heldur tónleika í Háskólabíói 3. maí. Ljósmynd/Jotta_97

Í dag gaf Hips­um­haps út tón­list­ar­mynd­band við lagið Hjarta af plöt­unni Ást & praktík. Plat­an var að stór­um hluta sam­in í Árós­um. Fann­ar Ingi Friðþjófs­son í hljóm­sveit­inni Hips­um­haps seg­ir að mynd­bandið við lagið sé eins kon­ar ástaróður til dönsku borg­ar­inn­ar. 

Fjöll­istamaður­inn Tam­bó Kristjáns­son leik­stýrði mynd­band­inu við lagið Hjarta. Fann­ar seg­ir að þeir hafi tekið upp mynd­bandið á fylle­ríi kvöldið áður en hann flutti heim frá Árós­um. „Mynd­bandið er því nokk­urs kon­ar óður til Árósa – og vináttu milli tveggja karl­manna,“ seg­ir Fann­ar. 

Hvað varstu að gera í Árós­um?

„Kær­ast­an mín var í námi og ég flutti út með henni fyr­ir loka­árið í skól­an­um,“ seg­ir Fann­ar. 

Hvernig var að búa þar?

„Árós­ar eru eitt best geymda leynd­ar­mál Evr­ópu. Ég elska þessa borg. Í henni er gott fólk og frá­bær menn­ing. Meira næs en Kö­ben.“

Hvað fjall­ar lagið Hjarta um?

„Lagið fjall­ar um ei­lífðar-flag­ara sem er lík­am­lega ófær um að elska. Byggt á fólki sem ég þekki og eig­in hjarta­galla. Atli Bolla­son skrifaði text­ann með mér og við Kiddi, Krist­inn Þór Óskars­son, út­sett­um lagið með frá­bæru fólki.“

Það er mikið um að vera hjá Hips­um­haps um þess­ar mund­ir en stór­tón­leik­ar í Há­skóla­bíói fara fram þann 3. maí. 


 


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert