Sjarmi í 100 ára gömlu húsi í Hollywood

Húsið hefur verið innréttað á heillandi máta!
Húsið hefur verið innréttað á heillandi máta! Samsett mynd

Á fal­leg­um og friðsæl­um stað í hlíðum Hollywood er að finna ein­stak­lega sjarmer­andi heim­ili sem kall­ast Draumalandið (e. dream­land). Húsið var upp­runa­lega reist á þriðja ára­tug tutt­ug­ustu ald­ar og er því meira en 100 ára gam­alt.

Húsið hef­ur verið inn­réttaður á heill­andi máta þar sem haldið var í upp­runa­leg­an sjarma og sögu húss­ins. Að inn­an er óneit­an­lega strand­arfíl­ing­ur með róm­an­tísku yf­ir­bragði þar sem hvít­málað timb­ur og ljós­ir hús­mun­ir spila stórt hlut­verk. 

Feg­urð í hverju horni

Áferð og efniviður úr nátt­úr­unni eru áber­andi í hús­inu, en þegar kem­ur að hús­gögn­um má sjá nýtt í bland við gam­alt sem skap­ar ein­staka stemn­ingu. Þá fá fal­leg­ir minni hús­mun­ir að njóta sín ásamt plönt­um, blóm­um og strá­um.

Húsið er um­vafið fal­leg­um gróðri, en þrátt fyr­ir að vera í aðeins nokk­urra mín­útna göngu­fjar­lægð frá hinni frægu Sun­set Strip-götu í Hollywood er um­hverfið friðsælt og stemn­ing­in ljúf. 

Húsið er til út­leigu á bók­un­ar­vef Airbnb, en þar kost­ar nótt­in í byrj­un júlí­mánaðar 349 banda­ríkja­dali, eða sem nem­ur tæp­um 50 þúsund krón­um. Tvö svefn­her­bergi og eitt baðher­bergi eru í hús­inu sem rúm­ar allt að þrjá næt­ur­gesti hverju sinni. 

Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert