Aðalskvísur landsins flúðu rigninguna

Vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir, Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Sara Jasmín Sigurðardóttir …
Vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir, Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Sara Jasmín Sigurðardóttir eru í skvísuferð í Svíþjóð! Samsett mynd

Sam­fé­lags­miðla­stjörn­urn­ar Sunn­eva Ein­ars­dótt­ir, Tanja Ýr Ástþórs­dótt­ir og Sara Jasmín Sig­urðardótt­ir flúðu rign­ing­una á Íslandi í von um betra veður ann­ars staðar – nán­ar til­tekið í Lundi í Svíþjóð. 

Vin­kon­urn­ar eru í sann­kallaðri skvísu­ferð, en þær hafa notið þess að geta skilið jakk­ann eft­ir heima þrátt fyr­ir að hafa þurft að hafa regn­hlíf meðferðis – enda tölu­vert auðveld­ara að sætta sig við smá rign­ingu ef það er hlýtt úti. 

Þær hafa verið dug­leg­ar að birta mynd­ir og mynd­skeið frá ferðinni á sam­fé­lags­miðlum sín­um, en þær byrjuðu ferðina á því að versla sér all­ar eins skó frá danska tísku­merk­inu Ganni áður en þær sett­ust niður og fengu sér drykki. 

Vinkonurnar byrjuðu ferðina á að versla sér skó í Ganni.
Vin­kon­urn­ar byrjuðu ferðina á að versla sér skó í Ganni. Skjá­skot/​In­sta­gram
Tanja Ýr og Sara Jasmín.
Tanja Ýr og Sara Jasmín. Skjá­skot/​In­sta­gram
View this post on In­sta­gram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert