Birgitta Líf flúði gulu viðvörunina til Tenerife

Ljósmynd/skjáskot Instagram

Eins og við mörg þekkj­um virðist gul viðvör­un oft vera ómiss­andi hluti af ís­lenska sumr­inu en áhrifa­vald­ur­inn og markaðsstjóri World Class, Birgitta Líf Björns­dótt­ir, flúði með fjöl­skyld­una til Teneri­fe. 

Birgitta er mætt á sund­laug­ar­bakk­ann og nýt­ur lífs­ins með rúm­lega þriggja mánaða syni sín­um, Birni Boða, sem virðist vera í topp mál­um í upp­blásn­um hæg­inda­stól með áfastri sól­hlíf. Litlu skinn­in verða líka að fá að slaka á annað slagið.

Teneri­fe ferðin er önn­ur ut­an­lands­ferð drengs­ins eft­ir að hann kom í heim­inn 8. fe­brú­ar síðastliðinn. Birgitta ferðaðist heims­horna á milli þegar hún var ófrísk og fór meðal ann­ars á Am­al­fi-strönd­ina á Ítal­íu, á 50 Cent tón­leika í Lund­ún­um, í jóla­ferð til New York-borg­ar og í skvísu­ferð til Par­ís­ar.

Ungi dreng­ur­inn fór líka í sitt fyrsta þyrluflug til að fagna þriggja mánaða af­mæl­inu sínu fyr­ir um tveim­ur vik­um og var hinn slak­asti.

Ungi ver­ald­ar­vani dreng­ur­inn verður án efa heims­borg­ari eins og móðir sín. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert