Snjókoma í júní vekur heimsathygli á TikTok

Veðrið hefur vakið þó nokkra athygli á TikTok.
Veðrið hefur vakið þó nokkra athygli á TikTok. Samsett mynd

Gul­ar og app­el­sínu­gul­ar viðvar­an­ir eru sann­ar­lega ekki það sem lands­menn óska sér í byrj­un júní, en óveðrið sem hef­ur geisað á Norðaust­ur­landi síðan á mánu­dag hef­ur verið áber­andi í fjöl­miðlum.

Veðrið hef­ur þó ekki ein­ung­is vakið at­hygli hér á landi held­ur einnig er­lend­is. Á sam­fé­lags­miðlin­um TikT­ok hafa birst þó nokk­ur mynd­skeið, bæði frá Íslend­ing­um og er­lend­um ferðamönn­um, af vetr­ar­færðinni. 

„Við vild­um bara sjá lunda“

Hjón­in Tanika og Noah hafa verið á ferðalagi um Ísland í nokkra daga og lentu í leiðinda­veðri, en þau birtu mynd­skeið af vetr­ar­færðinni með yf­ir­skrift­inni: „Við vild­um bara sjá lunda og þetta er það sem við enduðum í.“

Þó nokkr­ir hafa skrifað um­mæli við mynd­skeiðið, en einn not­andi skrifaði: „Íslenskt veður: Bú­ist við hverju sem er, hvenær sem er, og öllu í einu. Vet­ur­inn yf­ir­gef­ur aldrei Ísland. Þú get­ur upp­lifað all­ar árstíðirn­ar í einu“ á meðan ann­ar skrifaði: „Það er ekk­ert sum­ar á Íslandi, bara vet­ur, vor og haust.“

Þá var ís­lensk­ur not­andi sem skrifaði: „Pabbi minn seg­ist aldrei hafa upp­lifað svona júníveður á æv­inni. Það snjóaði líka um miðjan maí í fyrra en það var ekk­ert miðað við þetta. Þetta hef­ur verið svo stress­andi vegna kind­anna og hest­ana.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert