Þetta eru dýrustu tjaldsvæði landsins

Samkvæmt vef tjalda.is eru þetta dýrustu tjaldsvæðin á landinu.
Samkvæmt vef tjalda.is eru þetta dýrustu tjaldsvæðin á landinu. Samsett mynd

Að mati margra er fátt sem jafn­ast á við að elta góða veðrið og skella sér í úti­legu í góðum fé­lags­skap. Víðs veg­ar um landið má finna spenn­andi tjaldsvæði sem eru jafn mis­jöfn og þau eru mörg, en sums staðar er allt til alls á meðan önn­ur svæði bjóða upp á öðru­vísi upp­lif­un.

Tjaldsvæðin eru jafn mis­jöfn og þau eru mörg, en sums staðar er allt til alls á meðan önn­ur svæði bjóða upp á öðru­vísi upp­lif­un, t.d. án raf­magns, heits vatns eða in­ter­nets. 

Ferðavef­ur mbl.is tók sam­an þrjú dýr­ustu tjaldsvæði lands­ins sam­kvæmt vef tjalda.is, en þau eiga það sam­eig­in­legt að bjóða upp á meiri lúx­us en mörg önn­ur tjaldsvæði en eru þó afar ólík þegar kem­ur að staðsetn­ingu og um­hverf­inu í kring. 

Tjaldsvæðið í Laug­ar­dal

Á tjaldsvæðinu í Laug­ar­dal í Reykja­vík fer verðið eft­ir því á hvaða svæði tjald­stæði er pantað og und­ir hvað. Þá miðast verðin við að stæði sé pantað fyr­ir fram á net­inu og reikn­ast þá sjálf­krafa 10% af­slátt­ur á verðið.

Ef miðað er við einn full­orðinn ein­stak­ling er ódýr­ast að gista í tjaldi eða minni vagni án raf­magns, en þá kost­ar nótt­in frá 3.213 til 3.888 krón­ur með af­slætti. Nótt­in í stærri vögn­un­um með raf­magni kost­ar svo á bil­inu 5.688 til 6.848 krón­ur með af­slætti. 

Ef tekið er dæmi um fjög­urra manna fjöl­skyldu sem sam­an­stend­ur af tveim­ur full­orðnum og tveim­ur börn­um, 14 ára og 9 ára, myndi nótt­in í tjaldi eða vagni án raf­magns kosta fjöl­skyld­una frá 8.813 til 9.488 krón­ur. 

Fyr­ir nótt í stærri vagni eða hús­bíl með raf­magni myndi nótt­in hins veg­ar kosta fjöl­skyld­una frá 11.288 til 12.548 krón­ur með af­slætti. Hver ein­stak­ling­ur 13 ára og eldri sem bæt­ist við borg­ar 2.880 krón­ur fyr­ir nótt­ina með af­slætti á meðan 12 ára og yngri gista frítt á tjaldsvæðinu.

Tjaldsvæðið er vel staðsett við hliðina á Laug­ar­dals­laug, en þaðan er stutt í ýmsa þjón­ustu og afþrey­ingu, svo sem fjöl­skyldu- og hús­dýrag­arðinn, grasag­arðinn og lista­safn Ásmund­ar Sveins­son­ar. Á tjaldsvæðinu er aðgang­ur að heitu og köldu vatni, sal­erni, sturt­um, eld­un­araðstöðu og inn­i­svæði. Þá er einnig hægt að greiða fyr­ir aðgang að þvotta­vél og þurrk­ara og hund­ar eru leyfðir á svæðinu.

Tjaldsvæðið í Laugardal er dýrast fyrir fjögurra manna fjölskyldu.
Tjaldsvæðið í Laug­ar­dal er dýr­ast fyr­ir fjög­urra manna fjöl­skyldu. Ljós­mynd/​Fer­da­lag.is

Kerl­ing­ar­fjöll

Á tjaldsvæðinu í Kerl­ing­ar­fjöll­um er eitt verð sem gild­ir á allt tjaldsvæðið hvort sem fólk kem­ur með tjald, vagn eða hús­bíl. Ef miðað er við einn full­orðinn ein­stak­ling þá kost­ar nótt­in á tjaldsvæðinu 3.333 krón­ur með gistinátta­skatti. Hins veg­ar bæt­ast 2.000 krón­ur við verðið ef raf­magni er bætt við, en þá kost­ar nótt­in sam­tals 5.333 krón­ur. 

Fjög­urra manna fjöl­skylda sem sam­an­stend­ur af tveim­ur full­orðnum og tveim­ur börn­um, 14 ára og 9 ára, myndi því borga 8.333 krón­ur fyr­ir nótt­ina á tjaldsvæðinu án raf­magns, en 10.333 krón­ur með raf­magni. Hver full­orðinn ein­stak­ling­ur sem bæt­ist við borg­ar 3.000 krón­ur fyr­ir nótt­ina á meðan ung­menni á aldr­in­um 12-16 ára borga 2.000 krón­ur fyr­ir nótt­ina. Þá er frítt að gista á tjaldsvæðinu fyr­ir börn yngri en 12 ára. 

Tjaldsvæðið í Kerl­ing­ar­fjöll­um ligg­ur meðfram Ásgarðsá á grasbala með fal­legu um­hverfi. Gest­ir geta nýtt sér ýmsa þjón­ustu í kring, m.a. heit­ar laug­ar, veit­ingastað, spenn­andi göngu- og hjóla­leiðir og fleira. 

Á tjaldsvæðinu er aðgengi að köldu og heitu vatni, eld­un­araðstöðu, sturtu, sal­erni og in­ter­neti. Þá eru hund­ar leyfðir á svæðinu. 

Næstdýrast er að gista á tjaldsvæðinu í Kerlingarfjöllum.
Næst­dýr­ast er að gista á tjaldsvæðinu í Kerl­ing­ar­fjöll­um. Ljós­mynd/​Kerl­ing­ar­fjoll.is

Laug­ar­vatn

Á tjaldsvæðinu á Laug­ar­vatni er einnig eitt verð sem gild­ir fyr­ir allt svæðið, hvort sem fólk kem­ur með tjald, vagn eða hús­bíl. Ef miðað er við einn full­orðinn ein­stak­ling kost­ar nótt­in á tjaldsvæðinu 3.283 krón­ur með gistinátta­skatti. Þá bæt­ast 1.500 krón­ur við verðið ef raf­magni er bætt við, en þá kost­ar nótt­in 4.783 krón­ur. 

Fjög­urra manna fjöl­skylda sem sam­an­stend­ur af tveim­ur full­orðnum og tveim­ur börn­um, 14 ára og 9 ára, myndi því borga 7.733 krón­ur fyr­ir nótt á tjaldsvæðinu án raf­magns. Með raf­magni myndi nótt­in hins veg­ar kosta 9.233 krón­ur, en hver ein­stak­ling­ur eldri en 16 ára sem bæt­ist við borg­ar 2.950 krón­ur fyr­ir nótt­ina á meðan ung­menni á aldr­in­um 10-16 ára borga 1.500 krón­ur fyr­ir nótt­ina. Þá fá börn yngri en 12 ára að gista frítt á tjaldsvæðinu. 

Tjaldsvæðið á Laug­ar­vatni er skjólgott með fal­legu út­sýni, en þar er einnig stutt í ýmsa þjón­ustu sem gest­ir geta nýtt sér, m.a. versl­un, mat­sölustaðir, heilsu­lind og fleira. 

Á tjaldsvæðinu er aðgengi að köldu og heitu vatni, sturtu og sal­erni. Þá eru hund­ar leyfðir á svæðinu. 

Þriðja dýrasta tjaldsvæðið er á Laugarvatni.
Þriðja dýr­asta tjaldsvæðið er á Laug­ar­vatni. mbl.is/​Sig­urður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert