Hvar er besta veðrið fyrir tjaldútilegu um helgina?

Á að skella sér í útilegu um helgina?
Á að skella sér í útilegu um helgina? mbl.is/Golli

Veðurguðirn­ir virðast ekki ætla að baða lands­menn í of mik­illi sól um helg­ina. Þeir sem ætla í úti­legu og vilja elta besta veðrið ættu að halda sig á Aust­ur­landi sam­kvæmt tjald­vef Bliku

Ferðavef­ur mbl.is tók sam­an þau fimm tjaldsvæði þar sem besta veðrinu er spáð um helg­ina.

Myllu­læk­ur

Bú­ist er við besta veðrinu á tjaldsvæðinu við Myllu­læk um helg­ina. Á föstu­dag er reiknað með því að það verði skýjað, 7°C, norðaust­an 2 m/​s og úr­kom­an verði 2 mm. Á laug­ar­dag­inn er bú­ist við rign­ingu, 6°C, norðaust­an 4 m/​s og á úr­kom­an að nema 5 mm. Á sunnu­dag­inn læt­ur sól­in svo sjá sig en þá er bú­ist við að það verði heiðskírt, 12°C og suðvest­an 4 m/​s.

Tjaldsvæðið er staðsett í um 12 km fjar­lægð frá Höfn í Hornafirði og býður upp á ein­staka fjalla­sýn. Þar er aðgengi að köldu og heitu vatni, raf­magni, sal­erni og sturtu gegn gjaldi. Þá eru hund­ar leyfðir á svæðinu. 

Besta veðrið verður í nágrenni við Höfn í Hornarfirði samkvæmt …
Besta veðrið verður í ná­grenni við Höfn í Hornar­f­irði sam­kvæmt vef Bliku! Ljós­mynd/​Blika.is

Hauka­fell

Tjaldsvæðið Hauka­fell er staðsett á Suðaust­ur­landi, en þar er bú­ist við næst­besta veðrinu um helg­ina. Á föstu­dag er reiknað með því að það verði skýjað, 8°C, norðan 6 m/​s og úr­kom­an verði 2 mm. Á laug­ar­dag er hins veg­ar bú­ist við rign­ingu, 6°C, norðaust­an 4 m/​s og á úr­kom­an að nema 5 mm. Sól­in læt­ur svo sjá sig á sunnu­dag­inn en þá er bú­ist við að það verði heiðskírt, 12°C og suðvest­an 4 m/​s.

Hauka­fell er af­skekkt tjaldsvæði þar sem gest­ir geta upp­lifað friðsæld og kyrrð í fal­legri nátt­úru. Þar er aðgengi að köldu vatni og sal­erni, en ekki raf­magni, heitu vatni eða sturtu. Þá eru hund­ar leyfðir á svæðinu. 

Á tjaldsvæðinu geta gestir upplifað friðsæld og ró í fallegu …
Á tjaldsvæðinu geta gest­ir upp­lifað friðsæld og ró í fal­legu um­hverfi. Ljós­mynd/​Campsire.com

Djúpi­vog­ur

Tjaldsvæðið á Djúpa­vogi býður einnig upp á fína spá um helg­ina. Bú­ist er við að það verði skýjað á föstu­dag, 7°C, norðvest­an 10 m/​s og úr­kom­an verði 2 mm. Á laug­ar­dag er spáð rign­ingu, 5°C, norðaust­an 4 m/​s og á úr­kom­an að nema 4 mm, en á sunnu­dag­inn er hins veg­ar reiknað með því að það verði létt­skýjað, 15°C og suðvest­an 5 m/​s. 

Tjaldsvæðið er staðsett í hjarta bæj­ar­ins með fal­legu út­sýni yfir höfn­ina. Þar er aðgengi að köldu og heitu vatni, raf­magni, eld­un­araðstöðu, sal­erni, þvotta­vél og sturtu gegn gjaldi. Þá eru hund­ar leyfðir á svæðinu. 

Frá tjaldsvæðinu er fallegt útsýni yfir höfnina.
Frá tjaldsvæðinu er fal­legt út­sýni yfir höfn­ina. Ljós­mynd/​Tjalda.is

Smiðju­nes

Veður­spá­in er einnig fín fyr­ir tjaldsvæðið í Smiðju­nesi í Lóni. Á föstu­dag er bú­ist við að það verði skýjað, 11°C, norðaust­an 7 m/​s og úr­kom­an verði 3 mm. Á laug­ar­dag er spáð rign­ingu rétt eins og á hinum tjaldsvæðunum, en bú­ist er við 5°C, norðaust­an 7 m/​s og á úr­kom­an að nema 6 mm. Á sunnu­dag­inn kem­ur sól­in hins veg­ar úr fel­um, en þá er bú­ist við að það verði heiðskírt, 13°C og suðvest­an 6 m/​s. 

Smiðju­nes í Lóni er fal­legt tjaldsvæði á af­skekkt­um stað. Þar er aðgengi að köldu vatni og sal­erni, en ekki heitu vatni, raf­magni eða sturtu. Þá eru hund­ar leyfðir á svæðinu. 

Smiðjunes í Lóni er fallegt tjaldsvæði.
Smiðju­nes í Lóni er fal­legt tjaldsvæði. Ljós­mynd/​Tjalda.is

Laug­ar­vatn

Á Laug­ar­vatni er ágæt­is spá um helg­ina, en á föstu­dag­inn er bú­ist við að það verði al­skýjað, 12°C, suðaust­an 3 m/​s og úr­kom­an verði 3 mm. Á laug­ar­dag er spáð rign­ingu, 10°C, aust­an 1 m/​s og á úr­kom­an að nema 11 mm. Á sunnu­dag virðist sól­in ekk­ert ætla að láta sjá sig, en þá er spáð að það verði al­skýjað, 10°C, suðvest­an 6 m/​s og úr­kom­an verði 5 mm. 

Tjaldsvæðið á Laug­ar­vatni er skjólgott með fal­legu út­sýni. Þar er aðgengi að köldu og heitu vatni, sturtu, raf­magni og sal­erni. Þá eru hund­ar leyfðir á svæðinu. 

Spáin á Laugarvatni er ágæt um helgina.
Spá­in á Laug­ar­vatni er ágæt um helg­ina. mbl.is/​Sig­urður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert