David og Victoria Beckham kunna að gera vel við sig og það gerðu þau líka árið 1997 í Portofino á Ítalíu þegar þau voru nýbyrjuð saman. Viktoria rifjaði upp gamla tíma með Beckham á Instagram á dögunum.
„Portofino árið 1997 var mjög, mjög rómantísk ferð. Ég man hvað ég var spennt að vera þar með David í fyrsta skipti. Það var mikil spenna að vera bara tvö saman í 48 tíma,“ skrifaði frú Beckham á Instagram.
Fyrrverandi kryddpían og núverandi fatahönnuðurinn er að senda frá sér ilmvatn sem ber nafnið Portofino. Þess vegna rifjaði hún upp helgina með Beckham. Það á reyndar vel við að rifja upp tímann á Portofino núna þar sem margar stjörnur keppast upp að ferðast um Amalfi-ströndina á þessum árstíma en bærinn Portofino er staðsettur á ítölsku riveríunni.