Svali setur stefnuna á Ítalíu

Svali fór nýlega til Ítalíu með fjölskyldunni og kom heim …
Svali fór nýlega til Ítalíu með fjölskyldunni og kom heim með stórar hugmyndir. Ljósmynd/Aðsend

Sig­valdi Kaldalóns, eða Svali eins og hann er kallaður, hef­ur rekið far­sæla ferðaþjón­ustu á Teneri­fe í nokk­ur ár. Nú er hann að velta fyr­ir sér hvort að hann eigi að fara í út­rás til Ítal­íu. 

Svali var ný­kom­inn heim úr fjöl­skyldu­fríi á Ítal­íu þegar ferðavef­ur mbl.is náði á hann. Hann seg­ir Ítal­íu alltaf hafa heillað.  

„Ég var mikið á Ítal­íu sem barn þannig að Ítal­ía hef­ur alltaf verið á rat­ar. Það er hins veg­ar ekki fyrr en núna seinni ár sem hún hef­ur heillað mig sem vett­vang­ur í ferðaþjón­ustu. Hver veit hvað ger­ist í ná­inni framtíð,“ seg­ir Svali sem seg­ir svo sem ekk­ert í hendi en hann stefni til Ítal­íu. 

Það er aldrei leiðinlegt á Ítalíu.
Það er aldrei leiðin­legt á Ítal­íu. Ljós­mynd/​Aðsend

Eru ein­hver svæði þá sem þér finnst vera meira spenn­andi en önn­ur?

„Ég hef verið heillaður að Ítal­íu al­mennt. Tosk­ana tog­ar en svo eru bara svo mörg svæði þarna sem öll hafa sinn sjarma,“ seg­ir Svali. 

Úr Ítalíuferðinni á dögunum.
Úr Ítalíu­ferðinni á dög­un­um. Ljós­mynd/​Aðsend
Ítalía heillar.
Ítal­ía heill­ar. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert