Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir nýtur lífsins um þessar mundir í Króatíu. Hildur Vala er í fríi ásamt sambýlismanni sínum, Kjartani Ottóssyni sem starfar hjá KPMG.
Síðastliðnir mánuðir hafa verið afar annasamir hjá leikkonunni en hún hefur heldur betur hrifið leikhúsgesti, bæði unga sem aldna, í hlutverki sínu í söngleiknum Frost sem var frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins í byrjun mars. Hildur Vala fer með hlutverk snjóprinsessunnar Elsu.
Leikkonan hefur birt þó nokkrar myndir frá ferðalaginu á Instagram-reikningi sínum og virðist parið vera að njóta hverrar mínútu. Hildur Vala og Kjartan hafa meðal annars heimsótt eyjurnar Pakleni og Hvar.