Hvar verður bongó fyrstu helgina í júlí?

Það er gott að fara að huga að tjaldsvæði fyrir …
Það er gott að fara að huga að tjaldsvæði fyrir helgina. Samsett mynd

Fyrsta helgin í júlí hefur lengi verið talin fyrsta stóra útileguhelgin. Margir hyggja á tjaldferðalög um helgina, en hvert skal halda? Eins og oft áður á að vera mjög gott veður á Suðurlandi en það kemur meðal annars fram á útileguvefnum Blika.is. 

Ferðavef­ur mbl.is tók sam­an nokk­ur tjaldsvæði þar sem spáð er góðu veðri um helg­ina.

Laugarvatn

Hitinn á að fara upp í 16 stig á Laugarvatni á laugardaginn og 17 stig á sunnudaginn. Það má segja að það eigi að vera alvöru bongó á svæðinu. Tjaldsvæðið er gott enda skjólgott og hægt að koma sér fyrir í góðum lundi. Tjaldsvæðið hentar þeim sem vilja fara saman í útilegu og vilja vera nálægt sjoppu en líka þeim sem vilja vera nálægt góðum golfvelli. Auk þess er stutt í helstu náttúruperlur Suðurlands. 

Tjaldsvæðið á Laugarvatni.
Tjaldsvæðið á Laugarvatni. Ljósmynd/Blika.is

Hraunborgir

Það á að vera nokkuð gott veður í Hraunborgum í Grímsnesi um helgina. Á laugardaginn á að vera hálfskýjað en allt að 17 stiga hiti. Á sunnudaginn verður ekki verra veður. Það verður líklega enn betra veður á tjaldsvæðinu enda er það nokkuð skjólgott. Í raun er því lýst sem leyniparadís fyrir alla fjölskylduna enda er þar sundlaug, golfvöllur, leiksvæði, trampólín, aparóla og mínígolf svo eitthvað sé nefnt. 

Hraunborgir.
Hraunborgir. Ljósmynd/Blika.is

Flókalundur

Það er ekki spáð yfir 12 stiga hita í Flókalundi á Vestfjörðum. Hins vegar er spáð björtu veðri og þá komast Íslendingar ansi langt. Ef fólk ætlar vestur ætti það að íhuga að tjalda í Flókalundi enda er á tjaldsvæðinu góð aðstaða fyrir alla hvort sem það eru tjöld eða fellihýsi. Hægt er að komast í rafmagn og aðstaða er fyrir uppvask. 

Flókalundur.
Flókalundur. Ljósmynd/Blika.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert