Féllu fyrir Ítalíu

Sting og Trudie Styler.
Sting og Trudie Styler. mbl.is/AFP

Tón­list­armaður­inn Sting og leik­kon­an Trudie Styler elska Ítal­íu. Þau elska Ítal­íu svo mikið að eitt barna þeirra fædd­ist í land­inu. 

„Við Sting urðum ást­fang­in af Ítal­íu fyr­ir mörg­um árum – svo ást­fang­in að eitt barn­anna okk­ar fædd­ist ná­lægt Pisa, við vörðum mörg­um árum í að leita að hús­næði fyr­ir okk­ur öll,“ sagði Styler í viðtali við People um Ítal­íu­ást­ina. 

Hjón­in hafa átt hús í Tosk­ana í 30 ár og eru þau dug­leg að fara þangað. Börn­in þeirra eru orðin full­orðin og heim­sækja þau til Tosk­ana með sín eig­in börn. Hún seg­ir þau dug­leg að tengj­ast hvort öðru í Tosk­ana. 

„Við borðum sam­an, við les­um, synd­um, för­um í göngu­túra, spil­um, horf­um á kvik­mynd­ir,“ seg­ir Styler um það sem þau gera í hús­inu á Ítal­íu. „Við elsk­um að taka út hvað er að ger­ast á vín­ekr­un­um og við höld­um alltaf upp á brúðkaup­saf­mælið okk­ar þarna.“

Trudie Styler og Sting halda alltaf upp á brúðkaupsafmæli sitt …
Trudie Styler og Sting halda alltaf upp á brúðkaup­saf­mæli sitt á Ítal­íu. AFP/​Ja­son Mer­ritt
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert