Upplifði menningarsjokk á Íslandi

Ferðabloggarinn Ash Chinda segist hafa upplifað menningarsjokk á Íslandi.
Ferðabloggarinn Ash Chinda segist hafa upplifað menningarsjokk á Íslandi. Samsett mynd

Ferðablogg­ar­inn Ash Chinda fór ný­lega í ferðalag til Íslands. Í kjöl­farið deildi hún mynd­skeiði á TikT­ok þar sem hún sagði frá því að hafa upp­lifað menn­ing­ar­sjokk í heim­sókn­inni. 

Í mynd­skeiðinu fer Chinda yfir nokkra hluti sem hún upp­lifði sem menn­ing­ar­sjokk á Íslandi. „Fyrst og fremst, þau borða hesta. Einnig er ákveðin teg­und sem kall­ast ís­lenski hest­ur­inn sem er loðnari og styttri, þeir eru ótrú­lega krútt­leg­ir og þeir eru sett­ir á mat­seðil­inn,“ byrj­ar hún að út­skýra í mynd­skeiðinu. 

„Þau borða líka hvali. Mér fannst hval­ur það ómerki­leg­asta sem ég borðaði. Borðaði ég hest­inn? Nei. En ég borðaði hval, hann bragðaðist bara eins og hvít­ur fisk­ur. Svo þú get­ur í hrein­skilni sagt bara sleppt því að smakka hann ef þú vilt,“ bæt­ir hún við. 

Þó svo hval­ur­inn hafi ekki hitt í mark hjá Chindu þá var hún yfir sig hrif­in af lund­an­um. „Lundi er ótrú­leg­ur. Já, ég borðaði lunda. Mér er al­veg sama hversu sæt­ir þeir eru, fugl­ar eru best­ir dauðir á disk,“ seg­ir hún. 

„Lund­inn bragðast bara eins og mjúk anda­bringa. Hann er það ljúf­feng­asta sem ég hef lagt mér til munns,“ bæt­ir hún við. 

Hissa á fjölda fal­legra kvenna í ís­lensku lög­regl­unni

Því næst sagðist Chinda hafa verið hissa að sjá börn á öll­um aldri vera úti að leika sér ein síns liðs. „Börn á öll­um aldri eru bara úti að leika sér ein því það er svo ör­uggt að vera á Íslandi. Og ef þú ert að hugsa um að fara til Íslands til að sækja börn þá myndi ég ekki gera það þar sem ís­lenskt fólk er líka eitt­hvert skelfi­leg­asta fólk sem ég hef séð,“ seg­ir hún og bæt­ir við að hún hafi heyrt að Íslend­ing­ar væru ekki endi­lega þeir vina­leg­ustu. Hún hafi þó fengið góðar viðtök­ur en mæl­ir ekki með að fólk sem er ekki með góðan ásetn­ing heim­sæki landið. 

„Þetta er vegna þess að allt sam­fé­lagið pass­ar upp á krakk­ana og trygg­ir að ekk­ert raun­veru­lega slæmt ger­ist fyr­ir þá. Og plús það að það er svo kalt, hver vill fremja glæpi í svona kulda? Eng­inn vill fremja glæpi í svona kulda, eng­inn,“ bæt­ir hún við.

Að lok­um seg­ist Chinda aldrei hafa séð jafn marg­ar fal­leg­ar lög­reglu­kon­ur fyrr en hún heim­sótti Ísland. „Ég spáði mikið í því hvort það væru bara kon­ur í ís­lensku lög­regl­unni, en svo sá ég tvo menn. Ég sá samt aðallega kon­ur, en tvo menn. Þess­ar kon­ur eru senni­lega bara aðeins skelfi­legri en karl­arn­ir,“ út­skýr­ir hún. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert