„Grenivík er algjör paradís“

Harpa Káradóttir rekur MakeUp Studio Hörpu Kára sem er förðunarskóli.
Harpa Káradóttir rekur MakeUp Studio Hörpu Kára sem er förðunarskóli.

Harpa Kára­dótt­ir, förðun­ar­fræðing­ur og eig­andi Make-Up Studio, fer reglu­lega norður á Greni­vík þar sem að fjöl­skyld­an henn­ar á hús. 

„Amma mín er alin upp á Greni­vik og gamla húsið sem hún ólst upp í er enn í eigu fjöl­skyld­unn­ar. Sem barn fór ég á hverju sumri og dvaldi þar í dágóðan tíma. Í seinni tíð hef ég reynt að fara minnst tvisvar á ári,“ seg­ir Harpa.

„Við fjöl­skyld­an elsk­um að fara norður þegar við höf­um tæki­færi til og reyn­um að nýta löngu frí­in hjá krökk­un­um til þess að fara. Greni­vík er al­gjör para­dís og við elsk­um að fara á vet­urna í vetr­ar­dýrðina.“

Hvernig er drauma­dag­ur­inn fyr­ir norðan?

„Drauma­dag­ur­inn fyr­ir norðan er ró­leg­ur morg­un í gamla hús­inu okk­ar og taka svo lang­an bíltúr í sveit­irn­ar í kring og enda í sundi á Greni­vík.“

Hvar finnst þér best að fá þér sund­sprett á svæðinu?

„Sund­laug­in á Greni­vík er al­gjör draum­ur og ynd­is­legt að vera þar með börn og njóta út­sýn­is­ins og fal­lega um­hverf­is­ins.“

Er lífið fyr­ir norðan öðru­vísi á vet­urna og er hægt að gera upp á milli?

„Við elsk­um að fara norður á vet­urna og för­um mögu­lega oft­ar á vet­urna. Að vísu finnst okk­ur minna gam­an að vera veðurteppt en við tök­um það bara á kass­ann. Við erum ný­bú­in að kaupa skíði fyr­ir börn­in og hlökk­um til að geta nýtt Norður­landið bet­ur í alls kon­ar hobbí. Ég á þrjú börn, eina tíu ára og tví­bura sem eru að verða fjög­urra ára þannig að við erum al­veg að detta á betri stað til þess að geta gert meira úr hreyf­ingu og annað slíkt á svæðinu. Ann­ars höf­um við bara tekið því ró­lega fyr­ir norðan og notið þess að vera í hús­inu okk­ar með fjöl­skyldu og vin­um, elda góðan mat og njóta þess að vera sam­an. Maður dett­ur í ann­an takt þegar maður fer burt frá heim­il­inu og yf­ir­leitt náum við góðri slök­un og hlöðum hvergi bet­ur batte­rí­in eins og á Greni­vik.“

Ertu búin að skipu­leggja sum­ar­fríið?

„Við ætl­um að vera dug­leg að ferðast inn­an­lands í sum­ar og njóta einnig góðra stunda heima í garðinum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert