Júlí Heiðar boðar byltingu og skorar á Bjarna

Júlí Heiðar Halldórsson skorar á ríkisstjórnina.
Júlí Heiðar Halldórsson skorar á ríkisstjórnina. Samsett mynd

Tón­list­armaður­inn Júlí Heiðar Hall­dórs­son birti mynd­skeið á TikT­ok-reikn­ingi sín­um í gær þar sem hann skor­ar á rík­is­stjórn­ina og seg­ir að bylt­ing sé haf­in. 

Í mynd­skeiðinu seg­ir Júlí Heiðar að hon­um finn­ist ís­lenska ríkið eiga að niður­greiða sól­ar­landa­ferðir fyr­ir alla Íslend­inga í sum­ar, en það er óhætt að segja að veðurguðirn­ir hafi ekki verið í liði með íbú­um höfuðborg­ar­svæðis­ins það sem af er sumri. 

„Nú kem ég ekki oft hérna inn til þess að tjá mig um mín­ar stjórn­mála­skoðanir eða viðra mín­ar hug­mynd­ir en mér finnst ég vera knú­inn til þess að gera það núna. Mér finnst að ís­lenska ríkið ætti að niður­greiða sól­ar­landa­ferðir fyr­ir alla Íslend­inga þetta sum­arið. Ég ætla að stofna und­ir­skrift­arlista og ég vona bara svo inni­lega að þið skrifið und­ir. 

Sko, nú er ég alls ekk­ert að hugsa um mig. Ég var að koma frá Ítal­íu. Ég hef það fínt. Ég er að hugsa um ykk­ur,“ seg­ir Júlí Heiðar í mynd­skeiðinu.

„Bylt­ing­in er haf­in. Bjarni, við erum að koma!“ seg­ir hann svo að lok­um í mynd­skeiðinu. Júlí Heiðar bend­ir áhorf­end­um á að finna und­ir­skrift­arlist­ann sem hann seg­ist ætla að stofna, en það verður spenn­andi að sjá hvort leik­ar­inn sé að grín­ast með list­ann eða ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert