Svaf í bílnum í útilegu

Karen Björg Þorsteinsdóttir ólst upp á Grenivík.
Karen Björg Þorsteinsdóttir ólst upp á Grenivík. mbl.is/Arnþór Birkisson

Kar­en Björg Eyfjörð Þor­steins­dótt­ir átti ynd­is­lega barnæsku á Greni­vík. Henni finnst nauðsyn­legt að fara reglu­lega heim og hlaða batte­rí­in en hún ætl­ar að sjálf­sögðu að vera dug­leg að fara til Greni­vík­ur í sum­ar.

Hvernig var að al­ast upp á Greni­vík?

„Það var ynd­is­legt og stóískt. Fá­mennt en góðmennt. Ég var í Greni­vík­ur­skóla öll tíu árin og æfði fót­bolta og frjáls­ar íþrótt­ir. Ég var í ung­linga­vinn­unni og vann svo líka í Darra-harðfiski á sumr­in. Fólk fór miklu sjaldn­ar í bæ­inn, til Ak­ur­eyr­ar, þá en mamma fór um einu sinni í viku og þá fór ég oft með og helst fín til fara. Þannig að þetta var ein­angraðri heim­ur í denn.

Ég viður­kenni að mér fannst kannski ekki al­veg nægi­lega kúl að segj­ast vera frá Greni­vík þegar ég var ung­ling­ur en það breytt­ist með auknu sjálfs­áliti. Ég ólst upp með stelp­um sem ég er ennþá í góðu sam­bandi við í dag og þótt við séum flutt­ar burt þá hugs­um við all­ar hlýtt til Greni­vík­ur.“

Fjölskylda Karenar Bjargar er vélsleðafjölskylda. Hér er hún á Kaldbak …
Fjöl­skylda Kar­en­ar Bjarg­ar er vélsleðafjöl­skylda. Hér er hún á Kald­bak á góðum degi. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvað er það sem heill­ar helst við bæ­inn?

„Greni­vík er fá­rán­lega vel skipu­lögð og snyrti­leg. Búðin í miðjunni og skól­inn efst í brekk­unni. Ég þekki lands­lags­arki­tekta sem slefa yfir þessu skipu­lagi.“

Lang­ar þig stund­um að flytja úr borg­inni og flytja norður?

„Ég uni mér vel í Reykja­vík – eft­ir að son­ur­inn komst inn á leik­skóla. Ég hef ekki hug­leitt að flytja en ég verð hins veg­ar að koma reglu­lega norður af því að þar hleð ég batte­rí­in best.“

Er eitt­hvað úr litlu sam­fé­lagi eins og Greni­vík sem smit­ast út í hand­rita­skrif­in?

„Gren­vík­ing­ar búa yfir mjög þróuðum húm­or og oft frek­ar svört­um sem hef­ur klár­lega smitað mig. Ég er eins og stend­ur að vinna að glæpaseríu sem á að ger­ast úti á landi og ég er sú eina í skrifteym­inu sem er ekki frá Reykja­vík. Því gegni ég mjög mik­il­vægu hlut­verki við að upp­ræta lands­byggðarklisj­ur bæði í karakt­ervinnu og við skrif á söguþræðinum.“

Hvernig ferðalagatýpa ert þú?

„Ég pakka yf­ir­leitt alltof litlu og er illa skipu­lögð. Þegar ég eignaðist son minn vildi ég ólm fara í tjaldúti­legu sem endaði á því að við sváf­um inni í bíl. Ég er núna í tök­um á þáttaseríu sem heit­ir Útil­ega og ger­ist í úti­legu og ég er al­veg búin að fá minn skammt af svo­leiðis fyr­ir árið.“

Þegar sonurinn var lítill var Karen Björg spennt fyrir því …
Þegar son­ur­inn var lít­ill var Kar­en Björg spennt fyr­ir því að fara með hann í úti­legu. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvert fórst þú í úti­leg­ur þegar þú varst yngri?

„Við fór­um út um allt. Ég man sterkt eft­ir úti­legu í Atla­vík með mömmu og pabba en svo á amma mín ættaróðal í Keldu­hverfi þar sem við gist­um að minnsta kosti einu sinni á ári.“

Hvernig er drauma­dag­ur­inn á Norður­landi?

„Úúú, það væri bröns með stelp­un­um á Ak­ur­eyri, Skóg­ar­böðin, kaffi hjá ömmu Kiddu á Greni­vík og svo grilluð pítsa á pall­in­um hjá mömmu og pabba. Þau eiga hús við sjó­inn og við höf­um tvisvar borðað úti við dúk­lagt borð og sól­set­ur sem var al­gjör­lega sturlað.“

Dúklagt borð og sólsetur á Grenivík.
Dúk­lagt borð og sól­set­ur á Greni­vík. Ljós­mynd/​Aðsend

Áttu upp­á­halds­nátt­úruperlu fyr­ir norðan og af hverju?

„Kald­bak­ur er það besta á vet­urna. Það er mik­il sleðamennska í minni fjöl­skyldu og við erum dug­leg að fara upp á Kald­bak bæði um vet­ur og páska. Það er svo fal­legt að standa efst og sjá yfir all­an Eyja­fjörð og sól­ina glitra á snjón­um. Svo enda í pott­in­um heima hjá mömmu og pabba.“ 

En upp­á­halds­sund­laug á Norður­landi?

„Sund­laug­in á Ak­ur­eyri myndi ég segja að væri besta laug lands­ins. Hun er svo fjöl­breytt og snyrti­leg og klefarn­ir nota­leg­ir. En ég verð að nefna líka laug­ina á Greni­vík sem er búin að eiga al­gjört „glowup“ með tveim­ur nýj­um pott­um og gler­veggj­um.

Ertu búin að skipu­leggja sum­ar­fríið þitt?

„Greni­vík. Það er bara svo­leiðis.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert