Messi og Roccuzzo sjóðheit í fríinu

Li­o­nel Messi og eigikona hans Antonela Roccuzzo á snekkju.
Li­o­nel Messi og eigikona hans Antonela Roccuzzo á snekkju. Skjáskot/Instagram

Knatt­spyrnumaður­inn Li­o­nel Messi er stadd­ur í verðskulduðu fríi ásamt eig­in­konu sinni Ant­onelu Roccuzzo um þess­ar mund­ir. Messi varð ný­lega Am­er­íku­bikar­meist­ari með arg­entíska karla­landsliðinu í knatt­spyrnu, en eins og marg­ir vita var hann bor­inn út af velli í úr­slita­leikn­um vegna meiðsla. 

Eins og sést á mynd­um sem hjón­in birtu á sam­fé­lags­miðlum er kapp­inn í góðum mál­um í örm­um eig­in­konu sinn­ar, en þau eru stödd á lúx­ussnekkju ásamt vin­um sín­um. 

Roccuzzo hefur lengi verið helsti stuðningsmaður Messi og hún er …
Roccuzzo hef­ur lengi verið helsti stuðnings­maður Messi og hún er þekkt fyr­ir að vera dug­leg að mæta með dreng­ina þeirra á leiki. Skjá­skot/​In­sta­gram

Er mik­ill fjöl­skyldumaður

Messi og Roccuzzo hafa verið gift síðan 2017 og þau eiga sam­an dreng­ina Ciro 6 ára, Mateo 8 ára og Thiago 11 ára.

Fót­bolta­sjarn­an hef­ur alltaf verið mik­ill fjöl­skyldumaður en eft­ir úr­slita­leik­inn deildi hann hjart­næm­um pistli á In­sta­gram síðu sína. „Fjöl­skylda, takk fyr­ir að vera alltaf til staðar,“ skrifaði hann við mynd af allri fjöl­skyld­unni eft­ir úr­slita­leik­inn.  

View this post on In­sta­gram

A post shared by Leo Messi (@leomessi)

People

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert