Hollywood-stjarnan Zooey Deschanel og sjónvarpsstjarnan Jonathan Scott leggja jafnmikið af mörkum þegar þau fara í ferðalög. Styrkleikar þeirra liggja þó á mismunandi sviðum.
„Ég fæ þráhyggju yfir því að pakka í allar töskur – ég vil vera undirbúin undir allt,“ sagði Deschanel í viðtali við People.
„Jonathan hins vegar er frábær í þessu praktíska, að skipuleggja og sjá um dagskrána,“ sagði leikkonan um unnusta sinn.
Börn Deschanel fá hins vegar að njóta og þurfa ekki að sjá um neitt. Leikkonan á hina átta ára gömlu Elsie og sex ára gamla Charlie með fyrrverandi eiginmanni sínum. „Þau njóta bara ferðarinnar og borða naslið sitt.“