Köngulóarmaðurinn í ástarævintýri á Ítalíu

Leikarinn Tobey Maguire og fyrirsætan Babette Strijbos eru sögð vera …
Leikarinn Tobey Maguire og fyrirsætan Babette Strijbos eru sögð vera nýjasta stjörnuparið. Samsett mynd

Leik­ar­inn Tobey Maguire og fyr­ir­sæt­an Babette Strij­bos sáust kyss­ast í heit­um faðmlög­um í strand­ar­bæn­um Porto Cervo á Ítal­íu á dög­un­um.

Strij­bos, sem er 24 ára, er sögð vera önn­ur ást­kon­an sem hinn 49 ára gamli Maguire hef­ur sést með síðan hann skildi við fyrr­ver­andi eign­konu sína Jenni­fer Meyer árið 2016. Þó er aðeins um mánuður síðan leik­ar­inn sást með ann­arri ungri fyr­ir­sætu en 25 ára ald­urs­mun­ur er á Strij­bos og Maguire.

Í heit­um faðmlög­um á strönd­inni

Sam­kvæmt mynd­um sem voru birt­ar af nýja par­inu á fjöl­miðlin­um Daily Mail var parið á lít­illi einka­strönd þar sem fyr­ir­sæt­an var í litlu brúnu bik­inki og leik­ar­inn í skraut­leg­um Havaí sund­bux­um. 

Á ein­um tíma­punkti fóru þau að kæla sig í sjón­um og þá tóku þau þétt utan um hvort annað þar sem þau störðu djúpt í aug­un á hvort öðru. Það er því skilj­an­legt að þau stóðust ekki freist­ing­una um að stela nokkr­um koss­um á róm­an­tískri stundu.

Ítal­ía hef­ur heillað marg­ar stór­stjörn­ur

Það er þó ekki að undra að ást­in blómstri á Ítal­íu enda hef­ur landið upp á að bjóða róm­an­tísk­ar borg­ir, stór­feng­legt lands­lag og ógleym­an­lega mat­ar­upp­lif­un. 

Aðeins á þessu ári hafa fjöl­marg­ar stjörn­ur fallið fyr­ir Ítal­íu á borð við Jenni­fer Lopez, Halle Bailey og John Le­g­end. 

Page six

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert