Ástfangin þrátt fyrir marglyttubit

Vittoria Ceretti og Leonardo DiCaprio fóru í frí til Ítalíu …
Vittoria Ceretti og Leonardo DiCaprio fóru í frí til Ítalíu og lentu í ævintýrum. Samsett mynd

Leik­ar­inn­Leon­ar­doDiCaprio var sár­kval­inn þegar hann fór í róm­an­tíska báts­ferð á Ítal­íu með kær­ustu sinni, fyr­ir­sæt­unni­Vitt­oriuC­er­etti. Leik­ar­inn hefði bet­ur sleppt því að henda sér út í sjó og synda því á sund­inu var hann stung­inn í hægra lærið af mar­glyttu. Leik­ar­inn, sem er 49 ára, er ennþá ung­ur í anda en kær­ast­anC­er­etti er 26 ára. Hann gæti þess vegna verið dótt­ir hans en 23 ára ald­ur­mun­ur er á par­inu. Hann var þegar bú­inn að slá í gegn sem leik­ari þegar hún fædd­ist en hann fór með hlut­verkið í kvik­mynd­inni­Tit­anic sem frum­sýnd var árið 1997. Árið síðar, eða árið 1998 fædd­istC­er­etti áBrescia á Ítal­íu. En kannski er hún líka göm­ul sál og þannig ná þau að sam­ein­ast. Hver veit, en hún hef­ur verið í sviðsljós­inu síðan hún var 14 ára þegar hún var upp­götvuð. 

Ceretti birti þessa mynd af sér á Instagram á dögunum.
Cer­etti birti þessa mynd af sér á In­sta­gram á dög­un­um. Ljós­mynd/​In­sta­gram

Fram kem­ur í frétt People að leik­ar­inn og fyr­ir­sæt­an hafi dvalið á Ítal­íu í nokkra daga og hafi það verið á óskalista þeirra að fara í báts­ferð á lúx­ussnekkju. Á mynd­um sem miðill­inn hef­ur und­ir hönd­um sést leik­ar­inn sýna kær­ustu sinni sárið og þar eru líka mynd­ir af því þegar hún bjó um sárið. 

Mar­glytt­ustung­an náðu þó ekki að spilla gleðinni því parið var skæl­bros­andi eft­ir þetta og virt­ust njóta sín í botn á lúx­ussnekkj­unni. Á þess­ari snekkju voru vin­ir leik­ar­ans með í för. Þar á meðal leik­ar­arn­irTobeyMaguire ogLukasHaas.  

Vittoria Ceretti er í herferð fyrir tískuhúsið Versace.
Vitt­oria Cer­etti er í her­ferð fyr­ir tísku­húsið Versace.

Þótt leik­ar­an­um DiCaprio hafi vegnað vel í vinn­unni, fengið mörg eft­ir­sótt hlut­verk, þá hef­ur ástar­líf hans ekki al­veg náð sömu hæðum. Kannski er breyt­ing þar á núna en svo virðist sem hann sé að slá met því Cer­etti er fyrsta kær­ast­an í lang­an tíma sem er eldri en 25 ára en það er kannski ekk­ert að marka það þar sem hún varð 26 ára 7. júní síðastliðinn. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Vitt­oria Cer­etti (@vitt­oria)

People

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert