Lifðu eins og kóngur í Notting Hill

Litrík hús, antíkmarkaðir, fjölbreytt mannlíf og góðir veitingastaðir einkenna Notting …
Litrík hús, antíkmarkaðir, fjölbreytt mannlíf og góðir veitingastaðir einkenna Notting Hill. Samsett mynd

Nott­ing Hill er hverfi í vest­ur­hluta Lund­úna sem þekkt­ast er fyr­ir an­tík-markaðinn á Portobello Road, fal­leg­ar lífs­stíls­versl­an­ir og fjöl­marga góða veit­ingastaði. Mann­lífið er fjöl­breytt og má finna versl­an­ir og veit­inga­hús frá mörg­um mis­mun­andi menn­ing­ar­heim­um. Ef þú átt leið til Lund­úna mæl­um við með að eyða degi í hverf­inu, borða góðan mat og skoða lit­ríku hús­in. 

Morg­un­verðarstaðir og bakarí 

Morgunverður á Bodyism.
Morg­un­verður á Bo­dy­ism. Skjá­skot/​In­sta­gram

Bo­dy­ism er lík­ams­rækt, heilsu­lind og kaffi­hús. Þar er full­komið að hefja morg­un­inn með kaffi­bolla og heilsu­sam­leg­um morg­un­mat. Bo­dy­ism er staðsett á West­bour­ne Grove. 

Daylesford Organic.
Day­les­ford Org­anic. Skjá­skot/​In­sta­gram

Day­les­ford Org­anic er veit­ingastaður, mat­ar­versl­un og heim­il­is­vöru­versl­un sem legg­ur áherslu á líf­ræn­ar og vist­væn­ar vör­ur.  Við mæl­um með að fá sér nýkreist­an app­el­sínusafa og egg í morg­un­mat og skoða svo versl­un­ina. Day­les­ford Org­anic er staðsett á West­bour­ne Grove.

Vilt þú sætabrauð í morgunmat?
Vilt þú sæta­brauð í morg­un­mat? Ljós­mynd/​Skjá­skot

Fabrique er bakarí staðsett á Portobello Road. Þar má meðal ann­ars finna æðis­leg croiss­ant, kanil­snúða og annað sæta­brauð.

Skemmti­leg­ar göt­ur

Það er hægt að eyða mörgum klukkutímum á Portobello Road.
Það er hægt að eyða mörg­um klukku­tím­um á Portobello Road. Ljós­mynd/​Unsplash

Portobello Road er ein fræg­asta gata hverf­is­ins en það er an­t­ík­markaður­inn sem ein­kenn­ir hana. Best er að fara á föstu­dög­um eða laug­ar­dög­um og mæta snemma. Of­ar­lega eru an­tík­hús­mun­ir en eft­ir því sem á líður fara föt­in að vera meira áber­andi. Það er hægt að kom­ast yfir markaðinn á ein­um degi en það er jafn­vel betra að gefa sér góðan tíma og skoða líka fal­legu búðirn­ar í kring.

Á West­bour­ne Grove finn­urðu fal­leg­ar fata­versl­an­ir eins og Seza­ne, Me+Em, Free People, James Per­se, Sandro og Week­end Max Mara. Fyr­ir barna­föt get­ur þú heim­sótt Bon­po­int, Mini Rod­ini og Bon Ton. Lífs­stíls­versl­an­irn­ar Aesop eða Diptyque eru líka á göt­unni ef þig lang­ar í ilm­kerti eða góða sápu. Hið fræga franska kaffi­hús Ladu­rée er staðsett á göt­unni ef þig lang­ar í makkarón­ur og freyðivíns­glas.

Led­bury Road er lít­il gata þar sem má finna fata­versl­un­ina APC, Reiss, breska skó­hönnuðinn Penelope Chil­vers og Le Cr­eu­set fyr­ir þá sem vant­ar hluti í eld­húsið. Veit­ingastaður­inn Ottoleng­hi sem marg­ir þekkja er á göt­unni en þar má taka með sér mat eða borða á staðnum.

Á Gol­borne Road finn­urðu meðal ann­ars flott­ar an­tíkversl­an­ir, hús­gagna­versl­an­ir sem selja notuð hönn­un­ar­hús­gögn og versl­an­ir sem selja notuð föt. Þar má líka versla sér ilm­vatn í Le Labo eða fá sér sólgler­augu í Tayl­or Morr­is. Þar eru líka veit­ingastaðir eins og Gol­borne Deli og tyrk­neski veit­ingastaður­inn The Coun­ter.

Það er vinsælt að taka mynd af sér við litríku …
Það er vin­sælt að taka mynd af sér við lit­ríku hús­in á Lanca­ster Road. Unsplash/​Bet­hany Opler

Lanca­ster Road er þekkt fyr­ir lit­ríku hús­in sem þú hef­ur lík­lega séð svo marg­ar mynd­ir af. Steinsnar frá er St Luke's Mews, ör­smá gata sem mátti sjá í mynd­inni Love Actually, þegar besti vin­ur­inn játaði ást sína svo eft­ir­minni­lega á Keiru Knig­htley. 

Góður mat­ur

Secret Sandwich Shop er vel falinn.
Secret Sandwich Shop er vel fal­inn. Ljós­mynd/​Skjá­skot In­sta­gram

Secret Sandwich Shop er full­kom­inn staður fyr­ir fljót­leg­an há­deg­is­verð. Mat­seðil­inn er sí­breyti­leg­ur en þar má alltaf finna átta mis­mun­andi teg­und­ir af sam­lok­um. Staður­inn er staðsett­ur á Tal­bot Road, rétt við Portobello Road og er illa merkt­ur að utan.

Á Falafel King má grípa með sér frábæran skyndibita.
Á Fala­fel King má grípa með sér frá­bær­an skyndi­bita. Ljós­mynd/​Skjá­skot In­sta­gram

Fala­fel King er skyndi­bitastaður sem býður upp á frá­bært fala­fel sem má grípa með sér á meðan maður skoðar hverfið. Staður­inn er á Gol­borne Road og er bæði vin­sæll á meðal íbúa og túrista.

Ferskur og litríkur matur á Granger Co.
Fersk­ur og lit­rík­ur mat­ur á Gran­ger Co. Ljós­mynd/​Skjá­skot In­sta­gram

Það er þess virði að bíða í smá röð eft­ir borði á Gran­ger Co. á West­bour­ne Grove. Þar má fá góðan og fersk­an mat. Það er nán­ast alltaf mikið að gera á staðnum og það get­ur mynd­ast ör­tröð. Staður­inn er op­inn frá morgni til kvölds.

Dorian er tiltölulega nýr staður og vinsæll meðal íbúa.
Dori­an er til­tölu­lega nýr staður og vin­sæll meðal íbúa. Skjá­skot/​In­sta­gram

Dori­an er til­tölu­lega nýr staður á Tal­bot Road og hef­ur notið mik­illa vin­sælda síðan á meðal íbúa hverf­is­ins. Mat­ur­inn þykir ein­stak­lega góður og staður­inn glæsi­leg­ur.

The Pelican er staðsett­ur á horni All Saints Road og Portobello Road. Fyrsta út­gáfa The Pelican opnaði árið 1870 og var þá klass­ísk­ur bresk­ur pöbb. Árið 2022 kom þó ný út­gáfa staðar­ins fram sem býður upp á nota­lega stemn­ingu og góðan mat úr góðu hrá­efni.

Gold á Portobello Road býður upp á fjölda nátt­úru­vína og góðra kokteila í þægi­legu and­rúms­lofti. Þar er kjörið að setj­ast niður þegar þorst­inn er far­inn að segja til sín. Mat­ur­inn er góður líka.

Náttúruvín og kokteila finnurðu á Gold.
Nátt­úru­vín og kokteila finn­urðu á Gold. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert