Það væsir ekki um hina glæsilegu Heather Graham sem er um þessar mundir stödd í fríi á Ítalíu. Leikkonan birti myndasyrpu af sér á Instagram þar sem hún sleikti sólina á ströndinni ásamt kærasta sínum, snjóbrettamanninum John de Neufville.
Graham, best þekkt fyrir leik sinn í kvikmyndum á borð við Boogie Nights og Austin Powers: The Spy Who Shagged Me, er dugleg að ferðast og óhrædd við að deila sjóðheitum bikinímyndum frá hinum ýmsu heimshornum.
Myndasyrpan sló rækilega í gegn og virtist hitta beint í mark hjá aðdáendum leikkonunnar. Graham, sem fagnaði 54 ára afmæli sínu fyrr á árinu, klæddist meðal annars eldrauðu bikiníi þegar hún stillti sér upp fyrir myndavélina.
Ítalíu er í miklu uppáhaldi hjá Graham og de Neufville, en þau heimsóttu Positano í október á síðasta ári.
Graham hefur lítið sést á skjánum síðustu ár en hún staðfesti nýverið að hún muni fara með hlutverk í spennumyndinni They Will Kill Us.